Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1929, Side 24

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1929, Side 24
GANÖUR TUNGLS OG SÓLAR A Í8LANDI. í þriðja dálki hvers mánaðar, sem heíir yíirskriftina »t í h« (tungl i hádegisstað), og i töblunni á blaðsiðu (17) er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzkum meðaltima, þegar tunglið og sólin eru í hádegisstað í Reykjavík. En vilji menn vita, hvað klukkan sé eftir islenzkum meðaltíma, þegar tunglið eða sólin eru í hádegisstað á öðrum stöðum á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda »lengdarleiðréttingu« á Reykjavíkurtölunni. Verður hún — 4 mínútur fyrir hvert lengdar- stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 mín. fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík. T. d. er Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavik; lengdar- leiðréttingin þar er þá — 24 mín. og 5. júlí er sól i hádegisstað i Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða- firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið- réttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er því tungl i hádegisstað i Flatey kl. 6 15 f. m. (6 11 + 4 min. = 6 15). Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er miðja sólar sést koma upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring- inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól eða tungl í hádegisstað, en auk þess breiddarleiðréttingu. Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins, heldur er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavik. í eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitif (+), þegar sólargangurinn lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist. Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólarlagsins i Rvík, en dregin frá sólaruppkomutimanum, nema breiddarleiðréttingin sé negatíf (—), þá er það öfugt. Dæmi: Sólargangur 8. maí á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar og 2*/i stigi norðar en Rvík. Penna dag er sólargangur í Reykjavik 17 st. 29 mín. Breiddar- leiðrétting töblunnar fyrir 2*/> stig norður og sólargang 17 st. er + 23 mín. en fyrir 18 st. + 30 mín. og fyrir 17 st. 29 min. verður breiddar- leiðréttingin þvi + 26 min. Lengdarleiðréttingin er — 24 mín. í Reykjavik...........su. 3 41 sl. 9 10 Breiddarleiðrétting . — 26 +26 Lengdarleiðrétting . — 24 — 24 í Raufarhöfn . . . . su. 2 51 sl. 9 12 Annað dæmi: Sólargangur 20. nóv. i Flatey á Breiðafirði, sem er 1 stigi vestar og 1 */* stigi norðar en Rvik. Sólargangur i Reykjavik er 5 st. 56 min. í Reykjavík...........su. 9 15 sl. 3 11 Breiddarleiðrétting . +14 — 14 Lengdarleiðrétting . +4 + 4 í Flatey..............su. 9 33 sl. 3 01 (22)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.