Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1929, Page 54
is-, atvinnu- og samgöngumálaráðherra, Jónas Jóns-
son dóms- og kirkjumálaráðherra og Magnús Krist-
jánsson fjármálaráðherra.
í þ. m. var síra Stefán B. Kristinsson á Völlum
í Svarfaðardal settur prófastur í Eyjafjarðarpró-
fastsdæmi.
Sept. 8. Var Sigurður Einarsson Hlíðar dýralæknir
viðurkenndur þýzkur vararæðismaður á Akureyri.
— 24. Var Sigurður Einarsson, settur prestur að Flat-
ey, skipaður þar sóknarprestur.
í þ. m. var Guðmundi Guðmundssyni, héraðs-
lækni í Stykkishólmshéraði, veitt lausn frá embætt-
inu, frá '/n.
Okt. 1. Var Gísli Bjarnason, cand. juris, skipaður full-
trúi í fjármálaráðuneytinu.
— 19. Var Olafur Ólafsson cand. med. settur héraðs-
læknir í Stykkishólmshéraði, frá ‘/i*.
í þ. m. eða */u luku 3 stúdentsprófi úr mennta-
skólanum.
1 þ. m. (?) var Hannes Jónsson settur dýralækn-
ir i Rvik.
Nóv. 23. Voru skipaðir: Síra Friðrik Rafnar sóknar-
prestur að Akureyri, síra Porsteinn Ástráðsson að
Staðarhrauni og Sigurður Z. Gislason cand. theol.
aðstoðarprestur til Saurbæjarþinga.
— 24. Varð Helgi Tómasson læknir í Khöfn doctor
medicinæ við Khafnarháskóla.
— 27. Var Sigurður Z. Gíslason cand. theol. prest-
vígður í Rvik.
— 28. Var Henry Simon viðurkenndur franskur ræðis-
maður á íslandi með aðsetri í Rvík. — Var sýslu-
manninum í Barðastrandarsýslu vikið frá embætti
um stundarsakir. — Var Bergur Jónsson cand.
juris settur fyrst um sinn sýslumaður í Barða-
strandarsýslu.
— 31. Var Jóhann P. Jósepsson alþm. viðurkenndur
þýzkur ræðismaður í Vestmannaeyjum.
(50)