Milli mála - 2022, Blaðsíða 40
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 39
lengur“ (Fréttablaðið 2019).1 Hér koma fyrir orðapör þar sem sama
orðið er endurtekið og orðin tvö tengd saman með tengiorði. Orðapör
af þessu tagi koma fyrir í mörgum tungumálum heims og eiga sér
jafnvel langa sögu í málunum, eins og til dæmis í íslensku, þýsku
og spænsku.
Uppbygging þessarar greinar er með eftirfarandi hætti: Í fyrstu er
fjallað almennt um orðapör, hlutverk þeirra, eðli og einkenni. Þá er
í næsta kafla freistast til að flokka þau orðapör sem athyglin beinist
sérstaklega að, þ.e. þau sem er smíðuð úr kjarnaorði X + tengiorði
+ kjarnaorði X (X + X). Nefna má orðaparið lið fyrir lið í íslensku
sem dæmi um slík orðapör, página tras página (‚blaðsíða eftir blað-
síðu‘) í spænsku og Tag nach Tag (‚dag eftir dag‘) í þýsku. Síðan er
augum beint að orðapörum sem víkja frá þessari byggingu á þann
veg að ekkert tengiorð kemur fyrir í parinu heldur greinarmerki eins
og komma (X, X) eða þá að orðin standa hlið við hlið án tengingar
af nokkru tagi (X X). Kjarnaorðið er hið sama í orðaparinu: lengi
lengi eða sitt hvort orðið: nauðugur, viljugur. Dæmi um slík orðapör í
spænsku er todo todo (‚bókstaflega allt‘) og í þýsku má nefna schnell,
schnell (‚fljótt, með hraði‘2). Í lok greinarinnar eru reifuð orðapör, eða
orðarunur, sem víkja á einhvern hátt frá sígildri byggingu orðasam-
bandanna sem eru til umfjöllunar, og sem eru frekar sjaldgæf í mál-
unum þremur. Greininni lýkur með samantekt í lokaorðum.
1. Orðapör: hlutverk, eðli, einkenni
Harald Burger flokkar föst orðasambönd í þrjá meginflokka: til-
vísandi, formgerðarleg og samskiptabundin. Orðapör sem tilheyra
flokki fastra orðasambanda falla undir það sem Burger kallar form-
gerðarleg föst orðasambönd (Burger 2015, 55). Hér er átt við að bygg-
ing og gerð þeirra sé með ákveðnu fastmótuðu sniði. Orðapör saman-
standa af tveimur kjarnaorðum sem yfirleitt eru tengd með tengiorði.
Hjá þessari tegund orðasambanda er sjónum fyrst og fremst beint
að gerð þeirra þegar kemur að því að flokka þau og gera grein fyrir
þeim. Hvað varðar hina flokkana þá má benda á að tilvísandi föstu
1 Skáletrunin er höfunda.
2 Þess má geta að mörkin á milli orðapara og klifunar geta verið óljós.
ERLA ERLENDSDÓTTIR OG ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR