Milli mála - 2022, Blaðsíða 81
MILLI MÁLA
80 Milli mála 14/2/2022
um orðaforða og myndmáli fólks sem hafði alist upp við biblíulestur
og biblíulíkingar, og að trúarlegir húslestrar og kirkjusókn væru
helstu skemmtanirnar. Sagan greinir frá því þegar Satan sviptir Job
öllum sínum auðæfum og öllum sínum ellefu börnum í einni svipan,
því hann vill sanna fyrir Drottni að þá muni trúfesta Jobs bresta, en
guð hafði veitt Satani fullt frelsi til að beita öllum ráðum til að knýja
Job til örvæntingar. En Job stenst prófraunina með fleygri þolgæði
sinni og staðfastri guðstrú þrátt fyrir allan missi. Káni virðist verða
hugsað til æðrulausra orða Jobs þegar hann fleygir biblíunni á eldinn:
„Drottinn gaf og drottinn tók.“ Þau eru fastur hluti af kveðjuorðum
við jarðarfarir íslensku þjóðkirkjunnar, áminning um æðruleysi
gagnvart dauðanum. Eins og í Jobsbók þarf djöfullinn að leggja eitt-
hvað til málanna þegar hann mætir á biblíubálför Káins, og segir:
„holy smoke!“ Eins og Richard Beck (1945, 116) skýrir þá telst þetta
vera blótsyrði í Norður-Ameríku. Samkvæmt orðabókum varð „holy
smoke“ þó ekki að blótsyrði á ensku fyrr en undir lok nítjándu aldar;
fram að því vísaði það alfarið í heilagan reykinn af brennufórnum
sem færðar voru Drottni (Quinion 2000). Vísun í „swearing“ í
merkingunni að sverja eið, í fyrstu línu, kallast á við vísun í blótfórn
í annarri línu og blótsyrði í þeirri fjórðu.
Káinn nær sem sagt að draga upp margræðar og misvísandi
myndir af einum og sama atburðinum sem andstæðum en þó tryggi-
lega tengdum athöfnum. Annars vegar er biblíubruninn brennufórn
á guðsorði til guðs. En brennufórnir voru svo aftur á móti nefndar
„blót“ í okkar menningu til forna og þegar Satan segir „holy smoke“
er hann einmitt að blóta. Þetta er því hugmyndafræðilega, málfars-
lega, og menningarlega flókin staða og því eðlilegt að Káinn verði
hugsi og þegi.
Næmur skilningur og næmt eyra fyrir máli og málsniði er ein-
kennandi fyrir skáldskap Káins, sem sýnir sérstakan hæfileika til að
opna nýjar og óvæntar tengingar á milli íslensku og annarra mála í
örfáum línum. Hann leitast við að koma hugmyndum og hugtökum
í orð og auðsætt er að það skiptir hann minna máli til hvaða tungu-
máls hann grípur en það að orðið eða orðin séu rétt – skili réttri
hugmynd eða tilfinningu.
En hugmynda-, mál- og hljóðbrellur Káins þegar hann leikur sér
í bilinu, og í tengingunum, á milli mála eru þó það sem mest kætir.
ENSKUGLETTUR KÁINS
10.33112/millimala.14.1.4