Milli mála - 2022, Blaðsíða 137
MILLI MÁLA
136 Milli mála 14/2/2022
ískrar frásagnarfræði, og eins og áður segir þá virðist sem hún dragi
til sín völd Rodrigos S.M. yfir frásögninni – jafnvel þótt hún sé
persóna í verki hans. Spádómurinn felur jafnframt í sér meðvitund
um að ófyrirsjáanleiki spámennskunnar felist í því að skapa persónu
í skáldsögu – maður veit ekki hvað af henni verður í sköpunarferlinu,
eða í huga lesandans. Slík sköpunarverk öðlast þó visst frelsi – sem
fylgir ákveðin áhætta. Hvorki sögumaður né spákonan virðast hafa
fullt vald yfir því frelsi sem persónan Macabéa býr yfir – það er
gjöf söguhöfundarins. Og Lispector, raunhöfundurinn, er líklega
mjög meðvituð um að hún hefur ekki heldur fullt taumhald á þeim
söguhöfundi sem hún skapar með verki sínu. Alltént opnar spá-
konan Macabéu sýn á eigið líf, gefur henni framtíð og endurskrifar
sögu hennar. Kannski er það eingöngu til að hún geti selt henni
eitthvað, kannski svo að Macabéa gangi glöð um dauðans dyr. En
er spákonan kannski annars konar miðill hér og miðlar einfaldlega
vilja skaparans? Kannski er það Rodrigo hér rétt í blálokin sem ljáir
henni sýn, drauma, von, framtíð … og sviptir hana svo lífi. Það
væri annaðhvort grimmilegt, kvalalosti sem skaparinn deilir þá með
lesandanum, eða þá lygi sprottin af ást og meðaumkun. Kannski
er það raunhöfundurinn, sú sem felur sig á bak við sögumanninn,
eins og Pontiero segir.47 Kannski er það einvörðungu til að ljá lífi
Macabéu meiri merkingu í dauðanum, enn meiri áhrif í frásögninni,
djúpstæðari harm.
Macabéa var svolítið ringluð og vissi ekki hvort hún færi yfir götuna því
lífi hennar hafði þegar verið breytt. Og breytt með orðum – við höfum
vitað frá tímum Móses að orðið er guðdómlegt. Meira að segja með því að
fara yfir götuna var hún orðin önnur manneskja. Þunguð af framtíð. Hún
fann innra með sér von jafn ofsafengna og þá verstu örvæntingu sem hún
hafði fundið fyrir. Ef hún var ekki lengur hún sjálf þá væri sá missir í raun
og veru ávinningur. Rétt eins og maður getur verið dæmdur til dauða, þá
hafði spákonan dæmt henni líf. (70)
Það skiptir auðvitað ekki máli hvort spádómurinn sé fögur lygi,
svik og prettir, eða síðasta svipuhöggið. Hann er sannleikur fyrir
Macabéu, og í þessum kaldhæðnu örlögum kórónast harmleikur
47 Pontiero, 15.
LAUMAST ÚT UM BAKDYRNAR
10.33112/millimala.14.1.6