Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 16

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 16
stjórnmálaþrætu og persónuhaturs, eins og sumir hinna eldri manna. Seint um veturinn og vorið 1929 var svo komið, að flestir voru farnir að telja sameiningu líklega og á næstu grösum, strandaði ekki á persónulegum deiluefnum, svo sem því, hver verða skyldi fyrsti formaður hins nýja flokks. Þá sem jafnan gat gömul óvild og ógróið öfundarsár hindrað eðlilega framrás nýrrar skipunar í stjórnmálum. Svo er að sjá, að ýmsir íhaldsmenn hafi nú viljað láta breyta nafni flokksins, ekki einungis af fyrrnefndri ástæðu; þ.e. að það væri villandi og fráfælandi; heldur einnig í því skyni, að það mætti verða til þess að liðka fyrir sameiningu. Sumir þeirra munu líka hafa haft í huga, að hið nýja nafn gæti flutzt yfir á hinn nýja flokk, og hefur það því væntanlega átt að vera aðlaðandi fyrir fylgismenn Frjálslynda flokksins. Olíklegt má þykja, að slíkt hafi verið fýsilegt fyrir Frjálslynda, því að þá væri eins og þeir gæfust upp og gengju í Ihaldsflokkinn, þótt nýtt nafn bæri, í stað þess að sameinast honum á jafnréttisgrundvelli að þessu leyti undir nýju heiti, ákveðnu af báðum aðilum sameiginlega. Helst mætti ætla , að þeir hefðu getað sætt sig við heitið „Sjálfstæðisflokk” af sögulegum og tilfinningalegum ástæðum. Margir forystumanna Frjálslyndra komu úr Sjálfstæðisflokknum gamla, eins og fyrr sagði, svo að þeim var nafnið kært. Þá hefði líka getað litið svo út sem þeir hefðu komið með nafnið og haft að minnsta kosti sitt fram að því leyti í samningum um sameiningu. Þar með hefði að hluta verið breitt yfir þá staðreynd, að í raun mátti segja, að Frjálslyndi flokkurinn, mestöllu fylgi rúinn, væri að ganga í íhaldsflokkinn, er gaf lítið sem ekkert eftir nema nafnið á sjálfum sér, - en það var 14

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.