Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 21
Jónsson, alþm. Flutti hann glöggt erindi um starf on
stefnu Ihaldsflokksins. I lok ræðu sinnar minntist hann á
nafn flokksins. og út af því efni spunnust einkum þær
ræður, er á eftir fóru. Tóku margir til máls, en urðu þó
nokkrir frá að hverfa, sökum þess að fundartíminn var að
þrotum kominn. Þessir menn töluðu á fundinum:
Sigurður Kristjánsson, ritstjóri, Isafirði, Jón Jónsson,
bóndi í Firði, Jóhann G. Möller, stud. jur., Hafsteinn
Pétursson, bóndi á Gunnsteinsstöðum, Sigurður
Amgrímsson, ritstjóri, Seyðisfirði, Árni Pálsson,
bókavörður, Eggert Levý, bóndi að Osum í V-Húnavatns-
sýslu, Olafur Thors, alþm., Jón Guðmundsson, bóndi,
Garði, Pistilfirði, Jón Pálmason, bóndi á Akri í V-Húna-
vatnssýslu, Árni Jónsson, ritstjóri, Jón Jóhannesson, rit-
stjóri, Siglufirði, Helgi Guðmundsson, bæjarfulltrúi í
Hafnarfirði og Lúðvík Nordal Davíðsson, læknir á
Eyrarbakka.
Er þessir menn höfðu lokið máli sínu, var sam-
kvæmt ósk fundarins skipuð níu manna nefnd til þess að
athuga nafnbrevtingu flokksins og gera tillögur í því efni.
Þessir hlutu kosningu: Jón Þorláksson, Jón Pálmason,
Akri, Jón Guðmundsson, Garði, Sigurður Kristjánsson,
ritstjóri, Jón Jónsson, Firði, Jón Jóhannesson, Siglufirði,
Árni Pálsson, Ingólfur Flygenring og Jóhann G. Möller.
Morgunblaðið segir daginn eftir um fundinn m.a.
„Á fundinum í gær flutti Magnús Jónsson, alþm.
skörulegt erindi um störf og stefnu íhaldsflokksins. Að
erindinu loknu spunnust fjörugar umræður, og þótti
ýmsum, að nafnið á flokknum kæmi ekki vel heim við
stefnu flokksins. Var á fundinum kosin níu manna nefnd
til þess að athuga þetta sérstaklega og koma með tillögu
þar að lútandi.”
19