Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 38
einhlítur til þess að tryggja velfarnan þess atvinnuvegar.
Þær vonir hafa brugðizt. Á þeim tíma, sem kaupfélags-
starfsemin hefir staðið í fullum blóma, hefir landbún-
aðurinn dregizt aftur úr öðrum atvinnuvegum landsins,
sem miklu minna hafa fengizt við samvinnufélagsskap.
Þó hafa kaupfélögin sjálfsagt gjört mikið gagn. Að þau
hafa ekki uppfyllt þessar miklu vonir, er alveg eðlilegt. -
Þau eru aðeins samvinna um viðskipti, en framleiðslan
verður að fara á undan í viðskiptum. Þetta hafa þeir
atvinnuvegir skilið, sem komnir eru fram úr land-
búnaðinum. Og nú er vakin alda úr annarri átt til
viðreisnar landbúnaðinum, sem hefur aukning fram-
leiðslu hans að fyrsta markmiði. Sú alda er reist á réttum
skilningi á því, hver er undirstaða efnalegrar velmegunar,
og hún mun afreka það, sem kaupfélögin eftir eðli sínu
ekki megna, að koma landbúnaðinum aftur fram í
fylkingarbrjóst atvinnuveganna hér á landi.
Stofnskilyrði framleiðslunnar.
Framleiðslan er undanfari viðskiptanna, og hún
er sá eini grundvöllur, sem unnt er að byggja efnalega
velmegun á. Þess vegna er gagnlegt að gjöra sér ljóst,
hver eru þau grundvallaratriði, sent sérhvert framleiðslu-
fyrirtæki verður að byggjast á. Menn geta fest hugann
við eitthvert framleiðslufyrirtæki, sem þeir þekkja,
búskap í sveit, útgerð á fiskibát eða iðnaðarfyrirtæki.
Þrjú undirstöðuatriði verða óhjákvæmilega að
vera fyrir hendi, til þess að framleiðslan verði rekin með
árangri. Þau eru:
1. Stofnfé (fjármagn).
2. Vinna.
3. Stjórn.
36