Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 80
Germanía auglýsir kvöldskemmtun: Fyrirlestur,
skuggamyndir, konsert og dans á eftir.
Tveir menn auglýsa kvæðakveld, þar sem þeir
ætla að kveða margar rímnastemmur.
Jazz-músík er leikin hluta úr kvöldinu í
veitingahúsum („á restauration”).
Fiðlusnillingurinn Florizel von Reuter heldur
marga hljómleika með vandaðri dagskrá. „Til dæmis um
vinsældir hans má geta þess, að Abdul Hamid
Tyrkjasoldán lét hann eitt sinn leika fyrir úrvalskonur í
kvennabúri sínu. Voru þar viðstaddar 400 konur. Að
loknum hljómleikunum sendi soldán honum
heiðurspening úr gulli. Von Reuter er mikill vinur
Ferdinands, fyrrverandi Búlgaríu-keisara, og
hirðpíanóleikari hans, enda er von Reuter einnig snjall
píanóleikari, einkum á verk eftir Wagner”.
Von Reuter flutti einnig fyrirlestur um
dulhyggju.
Þýskir og danskir fræðimenn voru hér á ferð og
fluttu fyrirlestra.
Kurt Haeser lék opinberlega á píanó.
í Gamla bíói var verið að sýna „Götuengilinn”
(Emil Jannings í aðalhlutverki), „Drottningu
spilavítisins” (Pola Negri í aðalhlutverki), „Útlagann”
(eða „hinn nýja Hróa hött”) og „Harold Lloyd í
atvinnuleit”.
I Nýja bíói voru sýndar kvikmyndirnar „Sterkar
taugar”, „Föðurhefnd” og „Grímumaðurinn”
(„stórkostlegur kvikmyndasjónleikur í 10 þáttum eftir
sögu Orczy barónessu, „Leatherface”, sem var
framhaldssaga í Vísi í hitteðfyrra”).
Nokkrir „andlegir læknar” og dulrænir og
sálrænir hæfileikamenn frá Þýskalandi, Indlandi og fleiri
76