Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 22
í fundargerð segir og, að Gísli sýslumaður
Sveinsson í Vík í Mýrdal hafi sent í símskeyti árnaðarósk
til fundarins og flokksins. Formaður gat þess, að
landsmálafélagið Vörður byði fundarmönnum til
kaffidrykkju í veitingahúsi Rosenbergs þá um kvöldið,
og kvaðst hann vænta þess fastlega, að þangað kæmu
allir fundarmenn. Hann gat þess og, að nokkrar bifreiðar
yrðu til taks hjá Varðarhúsinu e.h. næsta dag handa
utanbæjarmönnum, sem kynnu að vilja bregða sér í
skemmtiferð út fyrir bæinn.
Fundi var slitið kl. hálf átta um kvöldið.
Rosenberg hafði þá „Café & Restauration” í húsi
Nathans & Olsen (síðar Reykjavíkur-apóteki) við
Pósthússtræti 7 á horninu við Austurstræti, og vissu
gluggar veitingastaðarins að Austurvelli og Pósthússtræti.
Þar er nú (1992) snyrtivöruverslunin Hygea, og húsið er
sagt vera nr. 16 við Austurstræti. Á jarðhæðinni norðan
megin eða við Austurstræti, þar sem lyfjaverslunin er nú,
var þá knattborðsstofa, þar sem karlmenn (aðallega ungir)
léku „billjarð aða ballskák”, en kvenfólk sást þar sjaldan
eða aldrei. Svo mikið kvað að tóbaksreykingum þar inni,
að haft var á orði, að stundum gætu menn „naumast séð
til þess að leika vegna vindlamakkar, vindlingareykjar og
pípugufuskýja”.
2. fundur.
Settur í Varðarhúsinu föstudaginn 5. apríl kl. 10.
árdegis. Það gerði Jón Þorláksson, og skipaði hann síðan
fundarstjóra Jón bónda í Firði Jónsson, formann Skjaldar,
20