Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 65
Mbl. 2. júní, þar sem Sjálfstæðisflokki er fagnað með
sterkum hvatningarorðum, en hinir stjómmálaflokkarnir
skammaðir.
Jón Þorláksson um sameininguna og Sjálfstæðis-
nafnið.
Jón Þorláksson skrifar um sameininguna langa
grein í tveimur hlutum, sem kom í Morgunblaðinu 30. og
31. maí og einnig í 26. tbl. Isafoldar og Varðar. Þar segir
hann m.a.:
„Á landsfundinum í vetur komu fram talsverðar
almennar óskir um, að flokkurinn breytti um nafn.
Jafnframt kom greinilega í ljós það álit fundarmanna, að
sameining við Frjálslynda flokkinn væri æskileg og
eðlileg, þar sem enginn ágreiningur um málefni væri
milli þeirra flokka. I fundarlokin fór fram
atkvæðagreiðsla um nafn flokksins; kom þá í ljós að nær
5/6 fundarmanna óskuðu nafnbreytingar. Urlausn þessa
máls hefir nú fengist sjálfkrafa með sameiningu
flokkanna.
Hið nýja flokksnafn, Sjálfstæðisflokkur, var
valið með fullu samkomulagi milli þingmanna þeirra
flokka, er sameinuðust. - Annar flokkur hefir áður borið
sama nafn, en það er ekkert einstakt um þennan flokk,
þótt hann velji sér heiti, sem annar flokkur hefir áður
borið. Sama hefur til dæmis núverandi Fram-
sóknarflokkur gert, þá er hann var stofnaður.
I innanlandsmálum bendir Sjálfstæðisnafnið
allvel á þungamiðju þess ágreinings, sem skilur milli
flokksins og sósíalistanna. Flokkurinn vill vinna að
víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli
einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis, með hagsmuni allra
63