Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 42
skiptir því afarmiklu máli fyrir framleiðslufyrirtækin í
heiminum, að þessi fjölmennasta tegund skiptavinanna
hafi sæmilega kaupgetu, hafi efni á því að kaupa afurðir,
vörur og fjármuni til eigin neyzlu eða notkunar, þ.e. hafi
sem hæst kaup.
Þessi sannindi hafa dulizt talsvert fyrir mönnum
fram til síðustu ára, og ástæðurnar til þess liggja í augum
uppi. Það er ekki von, að útgerðarmaður á Islandi telji
það hagsmunamál fyrir sinn atvinnurekstur, að sjómenn
og verkamenn í byggðarlagi hans hafi sem hæst kaup.
En hann skilur það fljótt, að það er hagsmunamál hans,
að verkafólk á Spáni og Ítalíu hafi sem hæst kaup - til
þess að það geti keypt sér saltfisk. Almennur skilningur á
því, hver velfaman fylgir því, að atvinnufyrirtækin geti
greitt hátt kaup - og geri það - vaknaði fyrst í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku, og það af þeirri eðlilegu orsök,
að það land er svo stórt og mannmargt og hefir svo fjöl-
breytt náttúrugæði og margháttaða atvinnuvegi, að þjóðin
getur sem næst verið sjálfri sér nóg, haldið efnahags-
starfsemi sinni út af fyrir sig án þess að skipta verulega
mikið við önnur lönd. Innlendi markaðurinn fyrir sérhverja
framleidda vöru er svo geysilega mikill hjá þessum 120
milljónum neyzlufrekra manna, að augun hlutu að opnast
fyrir því, að mikil kaupgeta almennings er einn af hyrn-
ingarsteinunum undir velfaman hvers þess fyrirtækis, sem
framleiðir einhverja vöru til almennrar neyzlu eða notkunar.
Nú eru atvinnufyrirtæki þeirra í Bandaríkjunum
því sama lögmáli háð sem annarra landa, að hvert þeirra
fyrir sig þarf að gæta þess, að kaupgjaldstilkostnaðurinn
verði ekki of mikill. Þeir hafa því lagt ótrauðir á þá
leiðina að umbæta vinnubrögðin, svo að komizt verði af
með sem fæst fólk eða framleiðslan á mann verði sem
mest, en borga því fáa fólki vel.
40