Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 78
188. Kristín Ólafsdóttir.
189. Helga Ólafsdóttir.
190. Beinteinn Bjamason, útgm., Hafnarfirði.
Hvað gerðu landsfundarmenn utan fundartíma?
Það fór ekki framhjá Reykvíkingum, að
landsfundur íhaldsflokksins stóð yfir. Fundargestir,
hvaðanæva að af landinu, settu sterkan svip á bæjarlífið.
Þeir heimsóttu vini, kunningja og ættingja og kynntu sér
lífið í Reykjavík, sem var ótrúlega fjölbreytilegt þá sem
nú.
Þá var minna um ferðalög en nú, og
skemmtiferðalög voru ekki algeng. Menn þurftu að eiga
sér eitthvert erindi; annars var talað um, að fólk hefði
lagst í flakk. Ferðalög voru meira fyrirtæki, meira
ævintýri, meiri hátíð en síðar varð. Byggðarlögin voru
einangraðri hvert frá öðru þá en nú á dögum.
Þeir sem kunna að halda, að lífið í Reykjavík
hafi verið fábrotið árið 1929, munu verða undrandi,
athugi þeir bæjarblöðin frá þessu ári. Það var í raun
mikið um að vera.
Hér skal til gamans og fróðleiks tínt til sitt af
hverju, sem sjá má í blöðunum þessa fáu daga í apríl
1929, og er þó aðeins fátt eitt talið. Víst má þykja, að
landsfundargestir utan af landi hafi notað tækifærið,
meðan þeir voru í Reykjavík, farið í bíó, í leikhús,
hlustað á fyrirlestra o.s. frv.
74