Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 58
starfsemi flokksins út um öll héruð landsins. Tillögur
nefndarinnar voru samþykktar með öllum greiddum
atkvæðum, og fara þær hér á eftir:
1. Fundurinn beinir því til flokksmanna og
miðstjórnarinnar að gangast fyrir því, að sem allra víðast
verði stofnuð félög, er hafi með höndum
flokksstarfsemina. Myndi félög innan hvers kjördæmis,
ef fleiri eru en eitt, samband sín í milli og standi í
sambandi við miðstjórn flokksins í Reykjavík.
2. Fundurinn skorar á miðstjómina að gangast fyrir
funda- og fyrirlestrahaldi úti um land, til þess að fræða
menn um stefnu og áhugamál flokksins.
3. Fundurinn telur æskilegt, að gefið yrði út tímarit
um stjórnmál, þar sem rædd yrðu þau mál og sú stefna,
sem flokkurinn berst fyrir, án þess að láta um of hrífast
með af dægurmálum og þeim deilum, sem blöðin hafa
full tök á að ræða.
4. Fundurinn skorar á alla flokksmenn að gera allt,
sem í þeirra valdi stendur, til þess að efla og útbreiða
blöð flokksins.
Um sama efni komu og fram tvær eftirfarandi
tillögur, er báðar voru samþykktar með óskoruðu fylgi
fundarmanna:
1 Landsfundurinn æskir þess, að miðstjóm
flokksins semji sem gleggst frumvarp til stefnuskrár fyrir
flokkinn og sendi það landsmálafélögunum og
áhugamönnum flokksins til athugunar og leggi það síðan
fyrir næsta landsfund til samþykktar.
56