Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 60
samræmi við stefnu hans og starf. En eigi vannst tími til
þess að gera ályktun í því efni áður en hlé þyrfti að gera
á fundinum kl. 7 vegna brottfarar Esju, en með henni
fóru allmargir fundarmenn heimleiðis.
I gærkvöldi efndi miðstjóm flokksins til
samsætis í veitingahúsi Rosenbergs fyrir fundarmenn.
Sátu menn þar í góðum fagnaði fram eftir kvöldi”.
*
Mönnum hefur fundist ólíklegt, að ákvörðun um
nafnbreytingu hafi ekki verið tekin að kvöldi 6. apríl,
eftir að meirihluti fundarmanna hafði fellt að fresta henni
tveimur til þremur klukkustundum áður. Væntanlega
hefur það verið ætlunin að ganga endanlega frá þessu
máli á kvöldfundinum. Þetta hafði verið eitt helsta
umræðuefni á landsfundinum. Ljóst er af öllu, að á
honum var íhaldsflokksnafninu hafnað. Ekkert var eftir
nema að velja nýtt nafn. Kaffisamsætið hjá Rosenberg
átti um leið að verða síðasti fundur þessa landsfundar.
Formaður átti líka eftir að flytja þakkar- og kveðjuorð í
fundarlok og slíta landsfundinum með formlegum hætti.
I fundargerð er talað um „kaffidrykkjufund”, ekki aðeins
kaffidrykkju, og Morgunblaðið segir, að hlé hafi verið
gert á fundinum. Fyrir kvöldkaffifundinum lá líka enn
óafgreitt helsta hitamál fundarins, stórmálið um sjálft
nafn flokksins. Næsta víst má telja, að málið hafi verið
tekið fyrir, eins og boðað hafði verið, og formlegur
fundur settur á meðan.
En hvaða ákvörðun var tekin, ef nokkur ? Það er
eftirtektarvert, að Morgunblaðið getur ekki um
nafnbreytingarmálið eða úrslit þess í sunnudagsblaðinu
7. apríl (sjá hér að framan). Meðal landsfundarfulltrúa
58