Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 64
bankaeftirlitsmaður, Jón Ólafsson, alþingismaður, Jón
Þorláksson, alþingismaður, Magnús Guðmundsson,
alþingismaður, Magnús Jónsson, alþingismaður, Ólafur
Thors, alþingismaður, Sigurður Eggerz, alþingismaður.
Innan miðstjórnarinnar starfar þriggja manna
framkvæmdaráð, þeir Jón Þorláksson, Magnús
Guðmundsson og Sigurður Eggerz, og geta menn snúið
sér til hvers þeirra, sem er, með erindi til flokksins”.
Morgunblaðið ver Sjálfstæðisflokkinn gegn árásum
Framsóknarmanna og Alþýðuflokksmanna.
Morgunblaðið skýrði rækilega frá stofnun hins
nýja flokks og fagnaði henni ákaflega. Yfirlýsingin var
birt sunnudaginn 26. maí og henni fylgt fast eftir í
forystugreinum og öðrum ritstjómargreinum.
Auglýsingar frá Sjálfstæðisflokknum fóru þegar að prýða
blaðið. Stjómarliðar, Alþýðuflokksmenn og Fram-
sóknarmenn, urðu illir við þessum tíðindum, og var m.a.
fullyrt í Alþýðublaðinu og Tímanum, að nafn flokksins
væri stolið. Morgunblaðið brást hart við slíkri illmælgi
og segir (undir fyrirsögninni „Móðursýki
stjórnarblaðanna”), að „heiftug móðursýki” hafi gripið
stjórnarblöðin í bænum. Þau hafi fengið æðiskast.
Sjálfstæðisflokksnafnið sé í fullu samræmi við stefnu
flokksins. „Öðru máli gegnir um nafn, sem er í
ósamræmi við athafnir flokksins, eins og nú á sér stað
um argasta einræðis- og afturhaldsflokk, er þekkst hefir á
Islandi enn, en ber þó nafnið “Framsókn”. Sama er að
segja um hinn stjórnarflokkinn, er skreytir sig með nafni
alþýðunnar, en er ekkert annað en róttækur klíku- og
stéttarflokkur, er lifir á erlendu sníkjufé. - Slíkir flokkar
hafa stolið nafn !” Mjög harðorð forystugrein birtist í
62