Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Blaðsíða 31
fyrir það missir einn af verkamönnum hennar atvinnuna
hálfan eða heilan dag. Hann vanhagar um skó handa
einu barni sínu - getur ekki keypt þá, af því að
verksmiðjan hafði ekki þörf fyrir vinnu hans þennan
daginn. Sama sagan getur svo endurtekið sig í einhverri
verksmiðju fyrir bamaskó o.s.frv.
Hin ályktunin, sem nú þegar verður dregin, er sú,
að sérhver hindrun á viðskiptun nytsamra gæða er
skaðleg, dregur úr fullnægingu mannlegra þarfa á sama
hátt og hindrun framleiðslu. Tökum t.d. sveitaheimili,
einangrað af vegleysum og snjóalögum á vetrardag.
Heimilið hefir mjólk aflögum, í næsta kauptúni er
fjölskylda sem vantar mjólk, en viðskiptin eru hindruð.
Aftur vantar sveitaheimilið kol til hitunar - getur ekki
keypt þau, af því að viðskiptin með mjólkina eru
hindruð. En úti í Englandi eru atvinnulitlir kola-
námumenn - einn þeirra verður af eins dags vinnu, af því
að bóndinn norður á íslandi getur ekki selt mjólk til þess
að kaupa eitt tonn af kolum. Alveg sömu afleiðingarnar
eru af hindrun viðskipta og af hindrun framleiðslu.
Skaðsemi þessara hindrana fyrir efnahagsstarf-
semina verður öldungis hin sama, hvort sem hindrunin
stafar af völdum náttúrunnar, eins og í dæmunum, sem
nefnd voru, eða af völdum mannanna. Verkfall eða
vinnuteppa á fiskiskipum hefir sömu efnahagsverkun og
veðurhindrun. Sölubann eða innflutningsbann verkar
eins og hver önnur viðskiptahindrun. I sömu átt verka
allar tálmanir, sem eru hálfgerðar hindranir, hvort heldur
á framleiðslu eða viðskiptum. Grasbrestur og
fjármagnsskortur geta dregið alveg jafnt úr framleiðslu
landbúnaðarafurða. Skiptjónsveður og tollmúrar geta
dregið að jöfnu úr viðskiptum milli landa.
29