Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Side 41

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Side 41
þau af framleiðslufyrirtækjum heimsins, sem fást við framleiðslu stofnfjármuna, ættu ekki að fá neitt verð eða endurgjald fyrir framleiðslu sína. Afleiðingin yrði auðvitað sú, að allir hættu að framleiða stofnfjármuni, en vildu eingöngu framleiða neyzluvörur. Þegar svo atvinnufyrirtæki þeirra væru útslitin, þá fengjust þau ekki endurnýjuð, af því að allir væru hættir að framleiða þau. Þá mundi framleiðslan á neyzluvörum verða að stöðvast líka og mannkynið að hverfa til síns upprunalega ástands - hver fjölskylda verða að bjargast af eigin aflaföngum beinlínis. Þess vegna getur þessi kenning ekki staðizt. 2. Vinnan. Öllum er ljós sú aðstaða vinnunnar til framleiðslunnar, að vinnan er nauðsynlegur þáttur í hverri framleiðslu og að kaupgjald fyrir þá vinnu verður að greiða af afrakstri framleiðslunnar. Ef litið er einhliða á þessa afstöðu, þá felur hún í sér hvöt fyrir eiganda fyrirtækisins til þess að halda kaupgjaldinu í heild sem lægstu. Til þess eru venjulega tvær leiðir fyrir hendi. Önnur er sú að halda kaupgjaldi hvers einstaks verkamanns sem lægstu. Hin er sú að haga vinnubrögðum þannig, að komizt verði af með sem fæst fólk. Verklegar framfarir síðustu ára hafa vísað mönnum greinilega inn á hina síðarnefndu braut. Aður en vikið er nánar að því, er rétt að geta þess, að starfsmennirnir standa einnig í annarri aðstöðu til framleiðslunnar en þeirri að taka kaup hjá því fyrirtæki, sem þeir starfa við. Þeir eru einnig neytendur og þar með skiptavinir eða afurðakaupendur allra þeirra fyirirtækja, sem framleiða einhverjar þær vörur, sem slíkir starfsmenn girnast og geta veitt sér. Nú eru verkamenn og starfsmenn með skylduliði sínu langfjölmennasti hluti flestra þjóða. Það 39

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.