Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 46

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 46
almennra þarfa, og það sérstaka ætlunarverk sitt að skapa aðstandendum sínum skilyrði til þess að geta fengið fullnægingu sinna þarfa. Næsta einkennið liggur ekki eins í augum uppi og verður auðvitað að takmarkast af þeirri almennu og sjálfsögðu reglu efnahagslífsins, að sá, sem hefir sérstaka ástæðu til að gæta einhverra hagsmuna, verður líka að gjöra það og gjöra það trúlega. Þessi regla þýðir þess vegna auðvitað ekki það, að stjórnendur neins fyrirtækis eigi að sækjast eftir því út af fyrir sig að selja sína vöru sem ódýrast til þess að fá á sig þetta eina einkenni blómlegs atvinnuvegar. Þeirra er skyldan að reyna að fá svo hátt verð sem bezt samsvarar hagsmunum þess fyrirtækis, sem þeir veita forstöðu. En samt sýnir nú reynslan, að þessi regla er rétt, og það stafar annars vegar af því, að mikil framleiðsla gjörir það yfirleitt ávallt mögulegt að selja með hagnaði, þótt verðið sé lágt. Framleiðslukostnaður í heild vex sem sé aldrei hlutfallslega við aukningu framleiðslumagns. Sem dæmi geta menn hugsað sér tímarit. Fái það mikla útbreiðslu (það er mikil framleiðsla), þá verður það líka selt ódýrt, og samt getur fyrirtækið haft meiri hagnað með því móti en með lítilli útbreiðslu og háu verði. Um þriðja atriðið, hátt kaupgjald, má að talsverðu leyti segja hið sama og um annað einkennið. Stjórnendur fyrirtækis verða að sjálfsögðu að gæta hagsmuna þess, þar á meðal veita nægilegt viðnám gegn kröfum um kauphækkun. En þar sækja starfsmennimir á, og reynslan sýnir, að hinn blómlegi atvinnuvegur greiðir ávallt hlutfallslega hátt kaup, af því að getan til þess er fyrir hendi. Hátt kaup getur líka átt mikinn þátt í því að bæta vinnubrögðin (draga að úrvalsmenn) fyrirtækinu til gagns. Þá er síðasta einkennið, mikill gróði. Venjulega 44

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.