Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 53

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 53
lækkun kaupgjalds, vegna þess að fé skortir í atvinnutæki og aðra stofnfjármuni handa viðauka fólksfjöldans. Skattamál má athuga og ræða frá ýmsu öðru sjónarmiði en þessu, þótt rúmið leyfi það ekki í þetta sinn. En ég get ekki stillt mig um að segja frá einum atburði, sem sýnir það, að rétt tilfinning í þessu efni er ekki útdauð ennþá í sveitunum, þótt kenningar sósíalista hafi fengið of mikil áhrif á hugsunarháttinn í kaupstöðunum. Lögin um tekju- og eignaskatt skylda sérhvern mann til þess að greiða skatt í ríkissjóð af tekjum sínum eftir settum reglum. Atvinnurekandi má þó draga beinan rekstrarkostnað við atvinnuna frá heildartekjum sínum, en hann má ekki draga kostnað við aukningu eða umbætur atvinnutækja sinna frá, hversu nauðsynlegt sem það hefir verið að leggja í þann kostnað. Þannig má bóndi draga tilkostnað við fólkshald til búrekstrar frá tekjum sínum, en hann má ekki draga tilkostnað við jarðabætur frá tekjunum. Lögin líta svo á, að sá bóndi, sem getur kostað jarðabætur af afrakstri búskaparins, hafi haft hreinar skattskyldar tekjur sem verðmæti jarðabótarinnar nemur, og þau heimta nokkuð af þeirri upphæð í ríkissjóð. Alveg sama gildir gagnvart umbótum annarra atvinnurekenda á atvinnutækjum sínum. Utvegsmaður, sem þarf nauðsynlega að byggja skúr yfir aflann, fær ekki að hafa þá upphæð skattfrjálsa, sem til þess þarf, iðnaðarmaður, sem nauðsynlega þarf að fá sér smiðatól eða vinnuvél, fær ekki heldur að hafa þá upphæð skattfrjálsa, sem til þess þarf o.s.frv. Eitthvað tveim árum eftir að byrjað var að framkvæma þessa löggjöf, barst fjármálaráðuneytinu umkvörtun frá formanni einnar skattanefndar á Suðurlandi um það, að það hlyti að vera eitthvað bogið 51

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.