Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 63

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936 - 15.04.1929, Page 63
Sameining flokkanna var skammt undan, því að snemma í maí er fjallað um það í þingflokki íhaldsmanna, hver verða skuli formaður hins væntanlega, nýja flokks. Félag frjálslyndra manna í Reykjavík hélt fund um sameininguna 24. maí, og urðu deilur þar mjög harðar. Tillaga var borin frarn um að hafna sameiningu. Hún var felld með 26 atkvæðum gegn 16. Bjarni Benediktsson, stud. jur., var fundarstjóri og úrskurðaði hann, að úrslit atkvæðagreiðslunnar jafngiltu samþykki við sameiningu. Daginn eftir 25. maí 1929, var Sjálfstæðis- flokkurinn stofnaður og þessi yfirlýsing gefin út: „Það hefir orðið að samkomulagi milli þingmanna íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins að ganga saman í einn flokk, er vér nefnum SJÁLFSTÆÐISFLOKK. Aðalstefnumál flokksins eru þessi: 1. Að vinna að því og undirbúa það, að ísland taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hendur og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og 25 ára samningstímabil sambandslaganna er á enda. 2. Að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. Flokkurinn hefur fyrirfram tryggt sér stuðning fjölmargra áhrifamanna utan þings úr Frjálslynda flokknum og íhaldsflokknum og leyfir sér að óska eftir, að þeir kjósendur úr báðum flokkum, sem ekki hefur enn náðst til, vilji veita Sjálfstæðisflokknum stuðning sinn. Málefnum flokksins milli þinga stýrir sjö manna miðstjóm, og skipa hana þeir: Jakob Möller, 61

x

Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skýrslur um I. Landsfund Íhaldsflokksins og Sjálfstæðisflokksins og II.-VI. Landsfund Sjálfstæðisflokksins 1931, 1932, 1933, 1934, 1936
https://timarit.is/publication/1788

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.