Úrval - 01.04.1944, Blaðsíða 91
ÞRÓUN SKYNFÆRANNA
séð, orð sem ég hefi heyrt og
leika mér að þeim.
„Cogito, ergo sum“ (ég hugsa,
þess vegna er ég til). Þannig
skilgremdi franski heimsspek-
ingurinn Descartes tilveru
mannsins. Honum fannst, að
hið minnsta, sem hægt væri að
krefjast af manninum væri, að
hann hugsaði. Ég er hræddur
um, að ef við héldum okkur
algerlega við þessa skilgrein-
ingu, yrðum við að draga þá
ályktun, að meirihluti mann-
kynsins væri ekki til. Lífeðlis-
fræðingamir eru ekki einskröfu-
harðir. Það mun almennt álit
þeirra, að skynjun skynfæranna
sé að minnsta kosti jafn mikil-
væg fyrir tilveru mannsins og
hugsunin. Með hjálp skilningar-
vitanna höldum við okkur við
vemleikann, og ef þeirri stoð
er kippt burt, er andanum voði
búinn. En skilningarvitin flytja.
okkur ekki aðeins skilaboð frá
umheiminum og líkama okkar.
Þau hafa einnig tvö önnur hlut-
verk á hendi: Þau verða að
stjórna gerðum okkar og hafa
þannig áhrif á taugar okkar, að
við verðum starfhæf.
Heilinn svara áhrifum skiln-
ingarvitanna með því að senda
skipanir til vöðvanna. En áhrifin
S9
geta einnig borizt til vöðvanna
án milligöngu heilans, með
einföldu viðbragði (refleks).
Ef við brennum okkur á fingri,
þá kippum við að okkur hend-
inni um leið og við finnum
sársaukann. Það er því ekki svo,
að við tökum viðbragð af sárs-
auka eftir að hann er orðinn
okkur meðvitandi í heilanum.
Viðbragðið er algerlega ósjálf-
rátt og háð áhrifunum. Þetta er
það, sem við eigum við, þegar
við segjum að skilningarvitin
stjómi athöfnum okkar.
Áhrif skilningarvitanna á
taugamar eru ekki síður mikil-
væg. Þau lýsa sér í því, að við
þörfnumst skynáhrifatilþessað
viðhalda viðbragðshæfileika
okkar. Taugakerfið krefst stöð-
ugra áhrifa. Það verður að' hlaða
það með áhrifum á sama hátt
og rafgeymir er hlaðinn raf-
magni. Hjá sumum dýrum gætir
þessara áhrifa aðeins frá einu
skynfæri. Dúfan verður til dæm-
is alveg máttlaus, ef skorið er
burt úr henni innra eyrað.
Sama gegnir um krabbann, ef
tekin eru úr honum jafnvægis-
líffærin.
Hjá dýmnum, sem hafa minni
heila en við, eru viðbragðsat-
hafnir ríkari þáttur. Ef maður