Úrval - 01.08.1945, Síða 11
GUÐ OG FAÐIR MINN
9
mín hefði gott af að gera sér
það ljóst. Hann bar fram mörg
rök máli sínu til stuðnings, en
að lokurn tókst samt móður
minni að sannfæra hann um, að
það væri fyrir neðan virðingu
hans að gefa ekki meira. Ekki
lét hann samt alveg undan,
heldur kom með málamiðlun:
áður en hann fór til kirkjunn-
ar, stakk hann dollaranum í
hægri vestisvasann, en í vinstri
vasann setti hann nýjan fimm
dollara seðil; og svo lýsti hann
því yfir, að héðan í frá lofaði
hann því að gefa fimm dollara
seðilinn, ef presturinn héldi
góða ræðu.
Þegar presturinn steig í stól-
inn, horfðum við strákarnir á
hann eftirvæntingarfullir, eins
<og hann væri veðhlaupahestur
að búa sig til hlaups. Venjulega
fyrirgerði hann öllum rétti til
verðlaunanna þegar á fyrsta
sprettinum. Stundum byrjaði
hann vel, en lenti svo út af þeirri
braut, sem faðir minn hafði
ætlað honum að fara, og geyst-
ist óafvitandi í allt aðra átt.
Þetta kom okkur strákunum í
holl kynni við kaldhæðni örlag-
anna.
Dag nokkum byrjaði prestur-
ínn að tala um það, sem hann
nefndi nýtt musteri. Faðir minn
gaf orðum hans lítinn gaum,
þangað til honum varð ljóst, að
það mundi kosta hann fjárút-
lát. Þá varð hann fokvondur.
Hann sagði, að hann hefði svo
sem átt að vita það, að þetta
hefði aðeins verið ráðabrugg
til að kría út peninga.
Hann varð enn æstari þegar
móðir mín sagði, að þess mundi
vænst, að hann gæfi stóra upp-
hæð, af því að hann hefði góða
stúku í kirkjunni. Það var eins
og jarðskjálfti. Faðir minn
lokaði sig inni í skrifstofu
sinni á hverju kvöldi og sagðist
ekki taka á móti neinum heim-
sóknum.
En nokkru síðar, þegar mesti
móðurinn var mnninn af hon-
um, sagði móðir mín honum, að
hann yrði að minnsta kosti að
veita fjársöfnunarnefndinni á-
heyrn.
Hann beið órólegur og önug-
ur. Kvöld nokkurt heyrði móðir
mín hávaða í skrifstofunni..
Faðir minn hafði alltaf orðið og
flutti mál sitt með sterkum
orðum að vanda. Hann varð
stöðugt háværari. Móðir mín
var farin að óttast, að nefndin
mundi fyrtast af svona skömm-
um. En þegar hún gægðist inn,