Úrval - 01.08.1945, Blaðsíða 125
YORKSHIREMAÐURINN FLJÚGANDI
123
Honum sárnaði mest af öllu,
hvernig Mully leit til hans. Hún
mundi aldrei framar trúa hon-
um. Trú! En hún var orsökin til
alls þessa!
Hann mundi allt í einu eftir
orðum litla prófessorsins: „Seg-
ið við sjálfan yður: „jÉg get
flogið. Ég get það! Ég get þaö!
Og trúið því ávallt.“ Sam brá á
sig axlaböndunum í hendings-
kasti: „Guð minn góður,“ hróp-
aði hann, „ég get flogið. Opnið
þið bölvaðar dyrnar!“
Um leið og hurðin opnaðist,
hófst hann á loft og sveif yfir
höfuð lögregluþjónanna, sem
köstuðu sér niður til þess að
verða ekki á vegi hans. Hann
þaut eftir ganginum, fyrir ofan
fólkið, og sveif upp í hinn geysi-
stóra áhorfendasal. „Bölvaðir
ræflar,“ æpti hann, „ég skal
sýna ykkur það!“ Hann þaut
nærri beint upp undir loftið og
horfði niður á hinar fölu ásjón-
ir, sem störðu vantrúaðar á
hann.
„Ég skal sýna ykkur það!“
æpti hann aftur og steypti sér
niður eins og steypiflugvél.
Áhorfendumir In-ukku í allar
áttir, skelfingu lostnir, og kút-
veltust hver um annan, en Sam
þaut áfram í áttina til útgöngu-
dyranna. Hann flaug með ofsa-
hraða yfir fólksfjöldanum og
skaust út um dyrnar.
„Nú, get ég þá flogið?“ hróp-
aði hann og sveif í hringjum og
steypti sér í náttmyrkrinu, rétt
uppi yíir bifreiðum og fótgang-
andi fólki. Hann tyllti sér á
húsþak og horfði niður á stræt-
in. Bifreiðar rákust á og konur
féllu í öngvit. Það hvein í flaut-
um lögreglubifreiða, sjúkra-
vagna og slökkviliðsbíla.
„Komið þér niður, þér þama,“
kallaði lögregluþjónn, og fór að
klifra upp bruna3tiga, með
byssu í hendinni.
Sam stökk fram af brúninni,
sveif í hringi kringum stigann,
og steypti sér niður að mann-
grúanum á götunni. Hann þaut
aftur upp á við og geystist um
borgina þvera og endilanga,
hrópandi hótanir og ögrunar-
orð, og kom hvarvetna allri um-
ferð á ringulreið. Þegar hann
var kominn hátt í loft upp, rann
honum reiðin. Hann var orðinn
leiður á mönnunum og sveif
hægt upp í náttmyrkt himin-
hvolfið. Hann heyrði aðeins
óglöggt ys stórborgarinnar.
Fyrir neðan hann var eyjan
eins og ljósknipplingar. 1 hinum
tignarlega sorta umhverfis