Úrval - 01.02.1948, Side 75
TRÚIN Á KROSSFESTAN TRÉSMIÐ
73
irm, G. G. Coulton, komst svo
að orði: „Trúin á smiðinn kross-
festa hefur dregið meira úr
sjálfselsku mannanna en nokk-
uð annað í mannlegri reynslu.“
Þetta trúaða fólk hefur aldrei
verið fjölmennt á nokkurri öld,
en ef umbætur hafa átt sér stað,
þá eru það þessir fáu, helgir
menn og spámenn, sem hafa
valdið þeim. Farsæld sannkrist-
inna manna laðar alltaf falska
fylgjendur að í von um ábata;
og jafnvel sannkristnir menn
standazt ekki alltaf freistingu
velgengninnar, mestu freist-
ingu, sem til er. Þess vegna hef-
ur kristindómurinn sínar dökku
hliðar — ofstækismenn, hræsn-
ara, stríð og ofsóknir. Engin
skyldi neita tilveru þessara
dökku hliða. Jesús spáði þeim,
og jafnvel spámaðurinn Jesaja,
átta öldum áður. En það stafar
líka miklu ljósi af kristindómin-
um; og það er þetta ljós, sem
veldur því, að myrkrið sýnist
svartara. Ef kenninga Krists
hefði aldrei notið við, myndu
styrjaldir, ofsóknir, ofstæki og
hræsni allt vera talið sjálfsagt
og eðlilegt. Þetta var til áður
en kristnin kom til sögunnar;
og ef kristindómurinn dæi út,
myndi það halda áf ram óhindrað.
Kristnir menn eru ekki allir
sammála; þeir hafa mjög skipt-
ar skoðanir. Sama máli gegnir
um Búddatrúarmenn, Múham-
meðstrúarmenn og guðleys-
ingja. Menn eru misjafnir; það
er eðli þeirra. Það væri grun-
samlegt, ef allir kristnir menn
væru á einu máli. Mér þykir það
ákaflega grunsamlegt, hve
Marxistar eru sammála í opin-
berum ummælum sinum; það
bendir til þess, að þau séu að-
eins eftiröpun. Ef við er-
erum heiðarleg, segjum við það
eitt, sem okkur er sjálfum ljóst,
en við erum ófullkomin og tak-
mörkuð. Það er ekki hægt að
setja allt Atlanzhafið í pottmál.
En það kemst nógu mikið af
Atlanzhafinu í pottmál, til þess
að við getum greint það frá for-
arvatni. Sýnishorn mitt hefur
ekki verið stórt, því fer fjarri,
en ætlun mín var að sýna fram
á, að margir nú á dögum þekkja
ekki mun á sönnu og ósönnu,
og flestum stendur raun-
ar á sama. Ef trúin er engin
eða röng, hlýtur heimurinn að
fara versnandi. Við getum gert
hann betri, ekki auðveldlega,
því að ekkert gott er auðvelt, en
einfaldlega með því að biðja um
hjálp, þar sem hjálp er að fá.