Úrval - 01.02.1948, Qupperneq 89
ÉG TRTJI Á SKYNSEMINA OG MANNINN
87
lögmálsins." Það er margt hægt
að finna að Búddatrúnni. En
engin búddatrúarfélagsskapur
hefur skipulagt hernað eins og
kaþólska kirkjan skipulagði
krossferðirnar. Ég er mótmæl-
andi. Það er að segja, ég mót-
mæli kenningum kaþólsku kirkj-
unnar. Mótmæli mín beinast
einkum að starfsemi kirkjunn-
ar á alþjóðavettvangi, og mér
er því miður fyrirmunað að
gefa frekari skýringu á þeim í
þessum erindaflokki.
Ég vík nú að hinni jákvæðu
hlið á trú minni. Það er ekkert
spaug að vera guðleysingi, því
að af því leiðir, að maður finnur
sig ábyrgan fyrir framtíð
heimsins. Ég verð sjálfur að
gera það, sem mér er unnt, því
að ég trúi því ekki, að nein yfir-
náttúrleg vera geri það fyrir
mig. Þvert á móti tel ég, að af-
leiðinga illverka minna eða leti
gæti um alla eilífð. Ég get ekki
bætt fyrir þau með iðrun eða
neinskonar helgiathöfnum. Ég
trúi því, að á öllum mönnum
hvíli skyldur, og mikilvægust
þeirra allra sé skyldan til að
vinna fyrir samfélag það, sem
við erum meðlimir í. Ég trúi
því, að allir menn hafi réttindi,
því að réttindi eru ekki annað
en skyldur, skoðaðar frá öðru
sjónarmiði. Einnig má orða það
þannig, að eins réttur sé annars
skylda. Ég veit ekki, hvernig ég
á að fara að því að fella þessa
trú mína og önnur trúaratriði
mín í skorður heilsteypts heim-
spekikerfis. Þetta raskar ekki
ró minni, því að ég veit ekki
hvernig á að finna samræmið
milli rafsegulaflsins og þyngd-
araflsins, og skammt er síðan
samræmið milli samdráttarafls
frumeindanna (chemical affin-
ity) og rafsegulaflsins fannst.
Ég trúi því, að nálega öllum sé
ljóst, að þeir hafi skyldur og
réttindi á sama hátt og öllum
er ljós tilvera heimsins. Ef við
lifum í slæmu samfélagi, gerum
við okkur ef til vill ekki ljósa
grein fyrir skyldum okkar og
réttindum, og okkur geta orðið
á alvarleg mistök; en við get-
um alls ekki lifað í samfélagi
án þess að gera okkur einhverja
grein fyrir þeim. Þessi skyldu-
tilfinning er ekki sprottin af
guðstrú. Þvert á móti; þegar
barni er sagt, að guð sé góður,
veit það, hvað átt er við með
„góður“. Við lærum skil á góðu
og illu við að lifa í samfélagi.
Trúarbrögðin voru mönnun-
um nytsamleg í fornöld, því að