Úrval - 01.12.1952, Side 18

Úrval - 01.12.1952, Side 18
16 ÚRVAL hungurhvötinni og þurfi saðn- ingar við eins og hún“ til þess að sannfæra sig um að hún gæti haft hemil á hvatalífi sínu án tilfinningasemi meðan hún væri of ung til að staðfesta ráð sitt. Hún var framgjörn og vildi ekki bindast hjúskaparböndum fyrr en hún hefði skapað sér stöðu í lífinu. Hún trúði því ein- læglega, að það væri skaðlegt að „bæla niður“ hvatir sínar. Hún vissi ekki, að það er tvennt ólíkt, að „bæla niður“ hvatir sínar eða halda aftur af þeim. Þegar við bælum niður hvöt, neitum við að viðurkenna fyrir sjálfum okkur að hún sé til. Þegar við höldum aftur af hvöt viðurkennum við, að hún sé til. en neitum að hlýða henni. Sérhver siðmenntaður maður er sífellt að halda aftur af hvöt- um sínum. Við kæmumst ekki ósködduð gegnum lífið ef við höguðum okkur í öllu eftir hvöt- um okkar. Klara þekkti ekki þennan mis- mun og trúði því að hún væri að breyta eins og þroskuð, á- byrg manneskja þegar hún tók upp náið samlíf við mann sem hún bar mikla virðingu fvrir, þó að hún elskaði hann ekki bá. í sérhverju sambandi af slíku tagi fer ekki hiá því að tilfinn- ingar annars aðilans verði dýpra snortnar en hins — og þá oft- ast konunnar. Þannig fór fyrir Klöru. Hún hélt að hún væri að leysa vandamál sín með kaldri, heilbrigðri skvnsemi, en áður en hún vissi, var hún orðin alvarlega ástfangin af mannin- um. Hún varð að þola miklar andlegar þjáningar, því að þótt manninum þætti vænt um hana var hann ófús að kvænast henni. Dæmin, sem rakin hafa verið hér að framan, svara að nokkru leyti spurningunni, sem brennur margri stúlkunni á vörum: „Af hverju á ég að bíða?“ Þó að hjónabandið sé ekki gallalaus stofnun hefur enn ekki fundizt betri lausn á þessu vandamáli. Samfélagið hefur skapað það af því að samlíf karls og konu getur aðeins orðið á- vaxtaríkt og fullnægjandi í and- rúmslofti sem veitir því skilyrði til fullrar blómgunar. Þau skil- yrði eru sjaldan fyrir hendi án þess samþykkis, verndar og stuðnings, sem samfélagið veit- ir þeim, er bindast hjúskapar- böndum. Stúlkan sem heldur að hálfur biti sé betri en enginn, teflir sér í mikla hættu. Hjúskapurinn er ekki óslitin skemmtiferð. En erfiðleikarnir, kröfurnar, byrðarnar og hætt- urnar sem honum fylgja, eru þó miklu minni en þeir ósigrar og þær hættur, er verða á vegí þeirra, sem ætla að grípa gæf- una utan hans. Það er ekki auðvelt að segja við ungt fólk: „Þið verðið að bíða,“ og sannfæra það um að verið sé að ráða því heilt. Betra er að segja: „Möguleikarnir til að öðlast haming'juna eru miklu meiri, ef þið bíðið.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.