Úrval - 01.12.1952, Blaðsíða 111

Úrval - 01.12.1952, Blaðsíða 111
LÍFSREYNSLA 109 inn í að ná peningunum aftur, en hann vissi ekki almennilega hvernig hann átti að fara að því. Hann vildi f orðast uppnám, hann var ókunnugur maður, staddur í hóteli, sem hann þekkti ekki; það gat vel hugsast, að kven- mannsskrattinn ætti kunningja þarna; hann var ekkert smeykur við að lenda í heiðarlegum slagsmálum, en það myndi verða minna úr honum, ef einhver mið- aði á hann byssu. Hann var líka svo skynsamur að viðurkenna, að hann gæti alls ekki sannað, að hann ætti peningana. Ef í odda skærist og hún legði eið út á að hún ætti þá, var ekkert líklegra en að hann yrði hand- tekinn og fluttur á næstu lög- reglustöð. Hann vissi ekki, hvað hann átti að gera. Brátt heyrði hann á andardrætti hennar, að hún var sofnuð. Hún hlaut að hafa sofnað sæl og ánægð, því að hún hafði unnið verk sitt vel. Það jók á gremju Nikka, að hun skyldi sofa svona vært, þegar hann lá vakandi, kvalinn af þungum áhyggjum. Skyndilega datt honum dáiítið í hug. Hug- myndin var svo góð, að það var aðeins með herkjubrögðum, að hann gat stillt sig um að stökkva fram úr rúrninu og framkvæma hana umsvifalaust. Það gátu fleiri en hún leikið þennan leik. Hún hafði stolið peningunum hans; gott og vel: hann ætlaði að stela þeim aftur, þá voru þau jöfn. Hann ákvað að bíða þar til hann væri viss um að hún væri steinsofnuð. Honum fannst tíminn vera afarlengi að líða. Hún bærði ekki á sér. And- ardráttur hennar var eins reglu- legur og sofandi barns. ,,Elskan,“ sagði hann loks. Ekkert svar. Engin hreyfing. Hún steinsvaf. Hann smeygði sér hægt og gætilega fram úr rúminu. Hann stóð kyrr nokkra stund og horfði á hana, til þess að aðgæta, hvort hún hefði rumskað. Andardráttur hennar var jafnreglulegur og fyrr. Með- an hann beið, setti hann á sig hvar húsgögnin stóðu í herberg- inu, svo að hann gæti varast að reka sig á stól eða borð. Hann steig tvö skref og beið; svo steig hann önnur tvö; hann var létt- stígur og það heyrðist ekkert til hans; hann var fimm mínút- ur út að glugganum, og þar beið hann enn um stund. Hann hrökk við, því að það brakaði í rúminu, en það var aðeins af því að unga frúin var að snúa sér í svefninum. Hann ákvað að bíða meðan hann teldi upp að hundrað. Hún svaf eins og steinn. Hann tók varlega um stöngulinn á blóminu og lyfti því upp úr pottinum. Svo stakk hann hinni hendinni niður í hann; hann fékk ákafan hjart- slátt, þegar fingur hans snertu pengingaseðlana; hann kreppti höndina utan um þá og dró hana hægt upp úr pottinum. Hann kom blóminu aftur fyrir á sín- um stað og þrýsti moldinni nið- ur með fingrunum, eins og hún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.