Úrval - 01.12.1952, Qupperneq 43
í*essi grein er skrifuð fyrir þá sem hafa
gaman af töfrabrög'ðum, en viija jafn-
framt skilja eðli fyrirbrigðanna.
Galdrar eða vísindi?
Úr bókinni „Mr. Wizard’s Science Secrets",
eftir Don Herbert.
HEFURÐU gaman af töfra-
brögðum? Ef svo er, viltu
þá ekki athuga með mér ýmsa
af leyndardómum náttúrunnar i
kringum okkur? Vísindin fjalla
um smæstu eindir efnisins og
gerð og gang himintunglanna, en
þau fjalla einnig um ýmislegt
sem við getum séð, heyrt og
þreifað á án viðamikilla tækja,
ýmislegt sem við getum skemmt
okkur við að rannsaka og gera
tilraunir með heima hjá okkur.
Auk ánægjunnar af því að læra
nokkur „töfrabrögð“, sem þú
getu skemmt með kunningjun-
um, verðurðu margs vísari um
náttúrulögmálin, er stjórna efn-
isheiminum sem við lifum í.
Hafið mikla.
Veiztu, að þú situr þessa
stundina á hafsbotni? Loftið,
sem þú lifir í, er í rauninni ekki
annað en haf. Það fyllir út öll
rúm í kringum okkar, það hef-
ur þyngd, eins og sjórinn, og
hagar sér að ýmsu leyti eins.
Haltu út flötum lófanum. Ofan
á honum er loftsúla, sem nær
hundmð km upp í loftið. Á
hverjum fersentimetra lófans
er þungi þessarar súlu rúmt
kíló!
En þú finnur ekkert til þung-
ans. Hvernig stendur á því? Við
skulum finna svarið með ein-
faldri tilraun. Barmafylltu glas
af vatni og leggðu pappaspjald
eða vaxpappír ofan á það. Settu
nú glasið varlega í lófa hægri
handar og leggðu lófa vinstri
handar ofan á spjaldið. Snúðu
glasinu snöggt við, en gættu
þess að halda spjaldinu stöðugu.
Nú tekurðu um glasbotninn með
hægri hendinni og f jarlægir var-
lega vinstri höndina frá spjald-
inu á glasopinu. Spjaldið situr
kyrrt, þótt ekki sé haldið við
það. Hvað heldur því uppi?
Þetta sýnist vera hreinasti
galdur, en er í rauninni einfalt
náttúrulögmál. Þú manst, að ég
líkti loftinu við haf. Það þrýstir
með jöfnum þunga (1 kg á fer-
sm.) á allar hliðar glassins, einn-
ig undir það. Ef glasið væri í
sjónum, mundi sjórinn þrýsta
á allar hliðar þess á sama hátt.
Nú er glasið hinsvegar úr föstu
efni, sem lætur ekki undan
þrýstingi loftsins, og þess vegna