Úrval - 01.12.1952, Blaðsíða 60
-Geðveikralæknir lýsir algengasta
og alvarlegasta geðsjúkdómi
sem þjáir mannkynið.
HUGKL OFNUN.
Úr bókinni „Basic Psychiatry",
eftir Edward A. Strecker.
HUGKLOFAR (schizophren-
ics) eru naeirihluti þeirra
geðveikissjúklinga sem fylla
geðveikraspítalana og þeirra
sem árlega bætast í hópinn. Nið-
urstaðan af ítarlegri rannsókn,
sem gerð var fyrir 12 árum, var
sú, að hugklofnun sé mesta sjúk-
dómsböl vorra tíma. Ég er sömu
skoðunar. Enda þótt nútíma-
lækningaaðferðir bjargi fjöl-
mörgum, er það enn svo, að á
hverju ári eru þúsundir ung-
menna dæmd út úr lífinu jafn-
vel áður en þau fá tækifæri til
að elska og njóta lífsins, dæmd
til að dvelja það sem eftir er
ævinnar — 50, 60, 70, jafnvel
fleiri ár — innan veggja geð-
veikraspítalanna.
Nokkurn sálfræðilegan fróð-
leik um hugklofnunina má finna
í hegðun letidýrsins, sem lifir
í hitabeltislöndum Ameríku. Það
er mjög fróðlegt að kynnast því
hvernig þetta undarlega spen-
dýr fer að halda lífi, umkringt
hinum sífelldu hættum frum-
skóganna. Það er næstum ger-
sneytt allri náttúrlegri vernd.
Það er svo sjóndapurt, heyrnar-
dauft og sljótt, að ef ungi, sem
hangir við móður sína, dettur,
eru litlar líkur til að móðirin
finni hann aftur, jafnvel þó að
hún fari örfá fet frá þeim stað
þar sem unginn liggur.
Letidýrið er svo hægfara, að
það er nokkra daga að fara þrjá
km. Það er svo letilegt í ásta-
lífi sínu, að stundum, þegar leik-
urinn stendur sem hæst, hættir
það, eins og það hafi skyndilega
gleymt því sem það var að gera.
Það lifir á allskonar laufblöðum
sem auðvelt er að ná og önnur
dýr kæra sig ekki um. Mestan
hluta ævinnar hangir það á löpp-
unum í trjágreinum og bærir
naumast á sér. En þrátt fyrir
þennan dauðyflishátt, eða kann-
ski einmitt vegna hans, verður
það furðulega sjaldan öðrum
dýrum að bráð.
Sá sem þjáist af hugklofnun
á háu stigi, líkist letidýrinu að
þessu leyti. Hann verst fimlega
hverskonar tilraunum, sem gerð-
ar eru til að komast inn fyrir
varnarhringinn sem hann hefur
reist umhverfis hugarheim sinn.
Ef fast er sótt að honum, getur
hann jafnvel, eins og pungrott-
an, dáið skindauða, orðið dauf-