Úrval - 01.12.1952, Page 82

Úrval - 01.12.1952, Page 82
■80 ÚRVAL ánægðan með minnstan heiman- mund með þeirri stúlku, sem í boði væri. Þannig hélt hann á- fram þangað til allar stúlkurnar höfðu verið boðnar upp. En kunnasta ferðalag Heró- dóts var án efa ferð hans til Egyptalands. Það er í rauninni fyrsta ítarlega frásögnin, sem við höfum af Egyptalandi, og sagnfræðingar styðjast enn við hana. Hann ferðaðist mest með fljótabátum upp hinar breiðu kvíslar Nílar, með þéttan papýr- us- og sefgróður á báðar hlið- ar, þar sem krökt var af krókó- dílum og hinum heilaga íbis- fugli, auk flóðhesta. Þegar ofar kom, þynntist gróðurinn og sandurinn fór að teygja sig fram á bakkana unz allur gróður hvarf og sandurinn ríkti í al- mætti sínu eins langt og aug- að eygði. Hann segist hafa kom- izt alla leið til Elefantín, sem nú heitir Assuan. Ferðalög í Egyptalandi eru ekki hvað sízt merkileg fyrir það, að þar sér ferðamaðurinn enn í dag sömu mannvirkin og Heródót lýsti fyrir 2400 árum. Og mörg þeirra voru þá þegar komin allmjög til ára sinna. Hann lét sér þó ekki nægja að lýsa mannvirkjum, jafnvel þótt þau væru mikilfengleg eins og pýramídarnir og musterin. Hann hafði lifandi áhuga á sið- um og háttum fólksins, og hann segir okkur fyrstur manna frá múmíum, dýrkun katta og kró- kódíla, og frá hinum heilaga uxa Apis og sjakalanum Anubis.*) Eftir öll hin miklu ferðalög sín ákvað Heródót að miðla lönd- um sínum af þeim fróðleik, sem hann hafði safnað, og varð hann mjög vinsæll sögumaður. Síðar tók hann þá sögulegu ákvörð- un að gera úr þessum frásögn- um sínum eitt samfellt sagn- fræðirit. Hinn rauði þráður verksins skyldi vera lýsing á því hvernig hin litla gríska þjóð hratt af höndum sér árásum persneska heimsveldisins, sem náði frá Eyjahafi til árinnar Indus, og frá Kaspíahafi til landamæra Etíópíu. Hann vissi fullvel að margt af því sem hann skráði gat varla verið satt, en það var það sem *) Um uxann Apis segir í goðsögum egypta, að hann varð að vera borinn af kvígu, sem aldrei hafði verið leidd undir naut, en orðið þunguð af eld- ingu. Það var trú egypta, að sólguð- inn Ósíris tæki sér bólfestu í Apis. Þegar Apis dó varð að leita meðal allra kúa landsins að öðrum Apis, og þegar hann loks fannst var hann fluttur i helgidóm þar sem hann var alinn á mjólk í fjóra mánuði. Þvi næst var hann fluttur til Memfis. Þar hafði hann tvo sali til umráða og gátu allir sem vildu séð hann. Eftir hreyfingum hans og háttalagi þegar hann át spáðu prestarnir fyrir gestunum. Anubis er fornegypzltur guð í sjakallíki eða með sjakalhöfuð. Hann er sonur Ósíris, varðmaður hinna dauou og leiðsögumaður sálnanna í ríki dauðans, þar sem hann vegur gjörðir þeirra (hjörtu þeirra) þegar þær eru leiddar fyrir dómarann. — Þýð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.