Úrval - 01.12.1952, Side 83

Úrval - 01.12.1952, Side 83
FAÐIR SAGNFRÆÐINNAR 81 fólkið sagði og trúði, og þess- vegna hafði það frásagnargildi. Þegar hann skýrði frá öðru en því sem hann hafði sjálfur séð varð hann að byggja á erfða- sögnum sem hann hafði engin tök á að sannprófa. Stundum gægist fram efa- girni hans á sannleiksgildi frá- sagnanna. Til dæmis segir hann á einum stað sögu af frægum kafara, sem synti sjö mílur í kafi. „Mín skoðun er sú,“ segir Heródót, ,,að hann hafi farið leiðina á báti.“ Stundum gengur efagirni hans fulllangt. Hann skýrir (að mestu leyti rétt) frá hver sé orsök hinna árlegu flóða í Níl, þ. e. snjóbráð, en bætir svo við að slíkt sé fjarstæða, því að hitinn vaxi eftir því sem sunn- ar kemur. En yfirleitt endur- segir hann það sem hann hef- ur heyrt athugasemdalaust, samkvæmt meginreglu sem hann orðar svo: „Hvað sem er getur gerzt á nógu löngum tíma.“ 1 samræmi við þessa megin- reglu segir hann eftirfarandi sögu: „Hér kemur saga sem cýren- ar sögðu mér. Þeir kváðust hafa farið til véfréttarinnar í Ammon og gefið sig þar á tal við Eteark- us, konung ammona. Talið barst meðal annars að Níl og að enginn maður þekkti upptök hennar. Etearkus sagði þá, að einu sinni hefðu komið til sín nokkrir nasamónar. Og þegar þeir voru spurðir hvort þeir hefðu nokkrar nýjar fréttir að segja af hinum miklu víðernum Libýu, sögðu þeir að upp hefðu komið meðal þeirra nokkrir villtir menn, ungir menn, höfð- ingjasynir, sem fundu upp á ýmsum firrum eftir að þeir urðu fullorðnir. Meðal annars hefðu þeir eitt sinn kjörið úr sínum hópi með hlutkesti fimm menn til þess að kanna eyðimörk Libýu í von um að komast lengra en nokkur maður hafði áður farið. Fimmmenningarnir fóru, vel- búnir af mat og drykk, fyrst um byggð lönd og síðan um lönd villidýranna. Síðan héldu þeir áfram í vestur, út á eyðimörk- ina, og þegar þeir höfðu farið um sandauðnir í marga daga sáu þeir vin þar sem uxu tré. Þeir gengu að trjánum og tóku til sín af ávöxtunum sem á þeim voru. Meðan þeir voru að því umkringdu þá dvergvaxnir menn, sem höfðu þá á brott með sér. Hvorugur hópurinn skyldi tungumál hins. Þeir fóru með fimmmenningana yfir víð- áttumikil fen og mýrar, unz þeir komu í borg þar sem íbú- arnir voru einnig dvergvaxnir og kolsvartir á hörund. Handan við borgina rann mik- ið fljót frá vestri til austurs og sáust í því krókódílar. Það sem ég hef hér sagt af sögu ammona nægir, nema að Etearkus skýrði frá því að fimmenningarnir hefðu komizt heim aftur, að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.