Úrval - 01.12.1952, Page 105

Úrval - 01.12.1952, Page 105
LlFSREYNSLA skiptið, sem hann kæmi í spila- vítið. „En þú mátt til að tylla þér aðeins við spilaborðið, áður en þú ferð. Það er ófyrirgefanlegt að fara frá Monte Carlo, án þess að freista gæfunnar. Þig munar hvort sem er ekkert um að tapa hundrað frönkum eða svo.“ „Það er mikið rétt, en faðir minn var aldrei hrifinn af því að ég færi hingað, og eitt af þrennu, sem hann ráðlagði mér sérstaklega, var að spila ekki.“ En þegar Nikki hafði skilið við kunningja sinn, reikaði hann aftur að borðinu, þar sem verið var að spila kúlnaspilið. Hann stóð þar stundarkorn og horfði á spilastjórann raka tapaða fénu til sín og vinningunum til þeirra, sem unnu. Kunningi hans hafði á réttu að standa, það var kjána- lega að fara frá Monte án þess að freista gæfunnar einu sinni. Það væri ný reynsla, og á hans aldri varð maður að öðlast aila þá reynslu, sem unnt var. í raun og veru hafði hann ekki lofað föður sínum að snerta ekki á spilum, heldur að gleyma ekki ráðleggingum hans. Það var ekki alveg það sama. Hann dró hundrað franka seðil upp úr vasa sínum og lagði hann hálffeimnislega á númer átján. Hann valdi þá tölu af því að það var aldur hans. Hann hafði ákafan hjartslátt, meðan hann fyigdist með snúningi hjólsins; litla, hvíta kúlan þaut áfram eins 103: og illgjarn púki; hjólið hægði á, sér, litla, hvíta kúlan hikaði, var- að því komin að stöðvast, en fór aftur af stað; Nikki ætlaði varla að trúa sínum eigin aug- um, þegar hún datt niður í núm- er átján. Hrúgu af spilapening- um var ýtt til hans og hendur hans titruðu, þegar hann tók við þeim. Þetta leit út fyrir að vera mikil fjárhæð. Hann var svo utan við sig, að hann gleymdi alveg að leggja undir í næstu umferð; í raun og veru ætlaði hann sér ekki að spila meira, einu sinni var nóg; og hann varð forviða, þegar átján vann í ann- að sinn. Það var aðeins einn peningur á því. „Hamingjan góða, þér hafið unnið aftur,“ sagði maður, sem stóð við hliðina á honum. „Ég? Ég lagði ekkert undir.“ „Jú, upphaflegu fjárhæðina. Þeir láta hana alltaf standa, nema maður óski eftir að fá hana endurgreidda. Vissuð þér það ekki?“ Annarri hrúgu var ýtt til hans,. Hann sundlaði. Hann fór að telja það sem hann hafði grætt: sjö þúsund frankar. Hann varð gagntekinn af kynlegri máttar- tilfinningu; honum fannst hann vera afburðasnjall. Hann hafði aldrei vitað jafn auðvelda leið til að afla sér peninga. Unglegt og hreinskilnislegt andlit hans ljómaði af fögnuði. Skær augu hans mættu augnaráði konu, sem stóð við hlið hans. Hún: brosti.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.