Úrval - 01.12.1952, Side 110

Úrval - 01.12.1952, Side 110
108 TJR VAL hún, að því er honum virtist í óratíma. Kyrrðin var svo mikil, að Nikka fannst hann heyra hjarta sitt slá. Svo tók hún jakkann upp, ákaflega varlega, stakk hendinni í brjóstvasann og dró upp úr honum fallegu þúsundfranka seðlana, sem Nikki hafði verið svo upp með sér af að vinna. Hún lét jakk- ann aftur á sinn stað og lagði önnur föt ofan á hann, til þess að svo liti úti sem ekkert hefði verið hreyft. Síðan stóð hún góða stund grafkyrr með seðl- ana í hendinni. Nikki ætlaði í fyrstu að stökkva fram úr rúm- inu og koma henni í opna skjöldu, en stillti sig; bæði var það, að hann gat varla hreyft sig fyrir undrun, og svo hitt, að hann var staddur í ókunnu hóteli í ókunnu landi, og enginn vissi hvað af því gat hlotizt, ef hann hleypti öllu í bál og brand. Hún horfði á hann. Hann var með augun hálflokuð og hann var viss um að hún hélt að hann væri sofandi. Hún hlaut að heyra reglulegan andardrátt hans. Þegar hún var búin að fullvissa sig um að hann hefði ekki vakn- að, læddist hún ofurhægt þvert yfir gólfið. Á smáborði við gluggann stóð blóm í potti. Nikki fylgdist nú með henni með gal- opnum augunum. Blóminu hafði sýnilega verið komið lauslega fyrir í pottinum, því að hún lyfti því upp með því að taka í stöng- ulinn; hún stakk peninga.seðl- unum niður í pottinn og setti blómið aftur á sinn stað. Þetta var framúrskarandi felustaður. Engum gat komið til hugar, að neitt væri falið undir þessan blómlegu jurt. Hún sléttaði moldina með f ingrunum og lædd- ist síðan að rúminu og fór aft- ur upp í. „Chéri,“ sagði hún í gælu- rómi. Nikki andaði reglulega, eins og maður í fastasvefni. Unga frúin sneri sér á hliðina og fór að sofa. Nikki lá grafkyrr, en hugur hans var þeim mun at- hafnasamari. Það svall í hon- um bræðin út af því, sem hann hafði séð, og hann dró ekk- ert úr því, sem hann sagði við sjálfan sig. „Hún er ekkert annað en bölv- uð gæs. Hún og litli drengurinn hennar og eiginmaðurinn í Mar- okkó! Svo er hún líka erkiþjóf- ur; það er hún sannarlega. Hún hélt að ég væri einhver fáráð- lingur! Ef hún heldur að hi'm geti haft eyrisvirði af mér, þá skjátlast henni.“ Hann var þegar búinn að á- kveða, hvað hann ætlaði að gera við peningana, sem hann hafði unnið svo þægilega. Hann hafði lengi langað til að eignast bíl og hafði fundizt það nánasar- skapur af föður sínum að gefa sér hann ekki. Jæja, hann ætlaði að gefa gamla manninum ráðn- ingu og kaupa sér sjálfur bíl. Fyrir tuttugu þúsund f ranka gat hann fengið mjög sæmilegan notaðan bíl. Hann var staðráð-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.