Úrval - 01.02.1956, Side 51

Úrval - 01.02.1956, Side 51
TÖTRAMENN PARlSAR 49 að túlka hinn algera þrældóm sinn sem fullkomið frelsi. Og þessvegna hneigjumst við til þess að telja þá hamingju- sama og sýna þeim jafnmikið afskiptaleysi og þeir sýna okk- ur. Er það þeim mun auðveld- ara fyrir okkur sem okkur er mikið í mun að telja þá að eðl- isfari ólíka okkur, afbrigðilega frá fæðingu. En það er ekki rétt. Ófáir tötramenn eru gáfumenn, jafnvel hámenntaðir. Margir höfðu skipað virðingarstöður í þjóðf élaginu: verið bókarar, bændur, leikstjórar, liðsforingj- ar. En hið sama hafði komið fyrir þá alla: sú stund rann upp þegar þeir megnuðu blátt áfram ekki lengur að fylgjast með. Tíminn hafði smátt og smátt tekið frá þeim alla orku. Á sama hátt og kuldi getur orðið ör- þrota lífveru að aldurtila, hætta þeir smám saman að geta borið af sér þau högg og pústra sem samfélagið lætur dynja á þeim. Andlegar orkulindir þeirra eru þrotnar. Það er athyglisvert, að flest- ir gerast tötramenn um fertugt. Þegar þeir missa atvinnu sína á þeim aldri, konan hleypur frá þeim, fyrirtæki þeirra fer í hundana eða þeir missa einka- barn sitt, brestur þá þrótt til að halda í horfinu. Upp frá því tóra þeir aðeins sem lifandi á- minning um, að mótstöðuafli mannsins gegn því ofurfargi, sem samfélagið leggur honum á herðar, séu takmörk sett. Þeir eru óþægileg áminning, því að enginn veit nema sömu örlög kunni að bíða hans. Ef til vill er vitundin um þessi tengsl or- sök þess umburðarlyndis sem Frakkar sýna tötramönnun- um. Það nær allt aftur til til- skipunar Karlamagnúsar frá árinu 806, þar sem munur var gerður á „sterkum betlurum", er beittir skyldu refsingum og settir til vinnu, og „veikburða betlurum" sem klaustur og gistihús voru hvött til að skjóta skjólshúsi yfir. Óljós samkennd knúði prinsa á miðöldum til að lauga fætur betlara og halda í hendur ölmusumanna í hinum mikla dauðadansi, sem þá var mjög tíðkaður. Það er sama til- finning sem ræður því, að prúð- búnir svallarar sitja í sátt og eindrægni við hlið tötramanna við barina í Les Halles. Tötramaðurinn er holdi klædd sönnun um fallvaltleik manns- ins. Okkur er sagt að hann dragi hið franska nafn sitt — clochard — af sögninni „að haltra“; en ég kýs held- ur að mega leggja í það dýpri merkingu, sem speglast í orða- tiltækinu: „II y a queíque chose qui cloche“.' Eitthvað í sigurverki þess heims sem mað- urinn hefur skapað sér geng- ur ekki eins og það á að ganga. Það eru forlög tötramannsins að vera þetta haltrandi hjól sig- J) Það er einhversstaðar eitt- hvað að.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.