Bókatíðindi - 01.12.1996, Síða 74
Ævisögur og endurminingar
'
JÁTNINGAR
PUSHKINS
A.S.Pushkin
Þýöing: Súsanna
Svavarsdóttir
Astin, hjónabandið, trún-
aðurinn, eru þær tilfinn-
ingar sem rússneska
skáldið tekst á við í þess-
um dagbókarbrotum, sem
bönnuð eru í Rússlandi,
komu fyrst út í Banda-
ríkjunum árið 1986.
Dagbókarbrotin eru
skráð síðustu mánuðina
áður en Pushkin lét lífið í
einvígi við G.S.Dantes
árið 1837. Þau hafa að
geyma hugarheim skálds-
ins og bregða upp áður
óþekktri mynd af lífi
hefðarfólksins í Rúss-
landi í upphafi 19. aldar
þar sem ástríðurnar eru í
forgrunni. Hugarheimur
Pushkins er erótískur, að-
laðandi og fráhrindandi í
senn; hann segir frá ár-
áttu sem á endanum
dregvu hann til dauða.
Bókin er ekki ætluð les-
endum undir 18 ára
aldri.
160 blaðsíður.
Reykholt
ISBN 9979-836-30-X
Leiðb.verð: 2.860 kr.
JÚRÍ ÚR NEÐRA
Júrí Resetov og
Eyvindur Erlendsson
Júrí Resetov sendiherra
Rússa er þekktur sem
skemmtilegur brandara-
karl. Ungur lærði hann
íslensku og fór til íslands
sem blaðafulltrúi. Var
grunaður um að fá njósna-
upplýsingar hjá Jóni
Baldvin og varð saklaus
að yfirgefa landið.
Hvert sem leið hans síð-
ar lá leitaði hann sálufé-
lags við Islendinga. Að
lokum kaus hann að
koma aftur til eyjunnar
hvítu, því hann „elskar
hljómlist íslenskrar
tungu“.
Bókin er ekki bein ævi-
saga, heldur eins og blik
af hugmyndum og til-
finningum sem gerir
hana skemmtilegri. Þar
kemur fram hið mikla
hlutverk Júrís sem eins
fremsta baráttumanns
mannréttinda í Rúss-
landi.
Allstaðar iðandi af gríni
og glensi, — en grín er
dauðans alvara.
320 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-299-5
Leiðb.verð: 3.680 kr.
LEIÐIN TIL FRELSIS
Nelson Mandela
Þýöing: Jón Þ.Þór og
Elín Guómundsdóttir
Ein merkilegasta ævisaga
okkar tíma. Bók sem hef-
ur hlotið einróma lof um
allan heim. Saga Nelsons
Mandela er engu lík. Hún
spannar allt frá æsku
hans, hvernig hann elst
upp, sonur höfðingja
thembumanna, unglings-
árin, skólagöngu, hvemig
hann uppgötvar hina hyl-
djúpu gjá milli hvítra og
svartra, vakningu hans í
baráttunni fyrir réttind-
um svartra, hvemig hann
kynnist Winnie konu
sinni, ofsóknum, fangels-
unum og hvernig hann
að lokum leiðir þjóð sína
til frelsis.
Ogleymanleg saga um
mikilhæfan leiðtoga og
mannvin.
512 blaðsíður.
Fjölvi
ISBN 9979-58-294-4
Leiðb.verð: 3.480 kr.
LÍFSGLEÐI
Minningar og frásagnir
Þórir S. Guöbergsson
I þessari nýju bók rifja
fimm þekktir Islendingar
upp liðnar stundir og
lífsreynslu. Þeir slá á
létta strengi og minning-
arnar leiftra af gleði. Þau
sem segja frá eru: Guðni
Þórðarson (Guðni í
Sunnu), Guðríður Elías-
dóttir, form. Verka-
kvennafél. Framtíðarinn-
ar í Hafnarfirði, Herdís
Þorvaldsdóttir leikkona,
Sigríður Schiöth söng-
stjóri og húsmóðir á Akur-
eyri og Ömólfur Thorlaci-
us f.v. rektor Menntaskól-
ans við Hamrahlíð. Þetta
er kærkomin bók fyrir alla
sem unna góðum endur-
minningabókum.
165 blaðsíður.
Hörpuútgáfan
ISBN 9979-50-079-4
Leiðb.verð: 2.980 kr.
LÍFSKRAFTUR
Friörik Erlingsson
Séra Pétur Þórarinsson og
Ingibjörg Siglaugsdóttir í
Laufási hafa gengið í
gegnum mikla erfiðleika,
hann misst báða fætur
vegna sykursýki, hún
fengið brjóstakrabbamein.
I þessari bók lýsa þau því
hvemig þau hafa tekist á
við mótlætið og ekki látið
það buga sig. Áhugaverð
lífsreynslusaga sem ætti
að verða öllum hvatning
til að líta á ljósu punktana
í tilvemnni!
280 blaðsíður.
Vaka-Helgafell hf.
ISBN 9979-2-1192-X
Leiðb.verð: 3.680 kr.
LÍFSKÚNSTNERINN
LEIFUR HARALDSSON
Daníel Ágústínusson
Leifur setti svip á lífið í
Reykjavík á árunum
1940-1970. Hann var tíð-
ur gestur á kaffihúsum
borgarinnar í fylgd þekkt-
ra skálda og andans
manna, svo sem Hannesar
Sigfússonar, Jóns Óskars,
Jóns úr Vör, Helga Sæ-
mundssonar og Steins
Steinarr. I bókinni er rak-
inn æviferill Leifs. Sam-
ferðamenn segja frá kynn-
um sínum af honum.
Loks er kafli með ljóðum
hans. Frægur var Leifur
fyrir orðheppni sína,
hnyttin og skörp tilsvör
og snjallar lausavísur sem
hann gat kastað fram fyr-
irhafnarlaust m.a.: „Ungu
skáldin yrkja kvæði“ sem
varð strax fleyg.
150 blaðsíður.
Hörpuútgáfan
ISBN 9979-50-077-8
Leiðb.verð: 2.980 kr.
Bók er best vina
74