Bókatíðindi - 01.12.1996, Page 80

Bókatíðindi - 01.12.1996, Page 80
Handbcehur Leiösögurit Fjölva: FENEYJAR ENGU LÍKAR Jónas Kristjánsson Níunda bókin í þessum vinsæla flokki leiðsögu- rita. Aður komnar út bækur um London, Kaupmannahöfn, París, Amsterdam, New York, Madríd, Róm og Dublin. Jónas leiðir okkur um þessa háborg lista og menningar, þar sem far- artæki eru bátar og hver kirkja full af dýrgripum gömlu meistaranna. Ómissandi ferðafélagi í vasa hvers ferðalangs. 96 blaðsíður. Fjölvi ISBN 9979-58-278-2 Leiðb.verð: 1.480 kr. FRIÐLÝSTAR FORN- LEIFAR í BORGAR- FJARÐARSÝSLU Guðmundur Ólafsson LEIRKER Á ÍSLANDI Guðrún Sveinbjarnardóttir 2. og 3. hefti í ritröð Forn- leifafélagsins og Þjóð- minjasafnsins. I 2. hefti er gerð grein fyrir rann- sóknum á 30 friðlýstum stöðum í sjö hreppum Borgarfjarðarsýslu. 77 myndir og uppdrættir, flest í lit. Enskur útdrátt- ur. f 3. hefti er gerð grein fyrir leirmunum heilum og brotnum sem fundist hafa í jörðu á íslandi frá öndverðu og rakinn upp- runi þeirra. Bókin er bæði á íslensku og ensku með fjölda mynda. 109 (2.h.), 184 (3.h.) blaðsíður. Hið íslenska fornleifafélag og Þjóöminjasafnið ISBN 9979-9120-0-6- (2.h.)/-9005-9-8(3.h.) Leiðíj.verð: 1.690 kr. hvort hefti. FYRSTU KYNNI AF TÖLVUM FYRSTU KYNNI AF TÖLVUM Margaret Stephens og Rebecca Treays Þýðing: Þórólfur Eiríksson Fyrstu kynni af tölvum leiðir lesandann inn í heim tölvunnar á mynd- rænan og afar skýran hátt. Með snjöllum sam- líkingum og skemmtileg- um teikningum eru flóknir hlutir gerðir ein- faldir. Lesandinn öðlast glöggan skilning á innri og ytri búnaði tölvunnar og kynnist þeim orðum og hugtökum sem hann þarf að hafa á takteinum. 48 blaðsíður. Nesútgáfan sf. ISBN 9979-9194-1-8 Leiðb.verð: 1.780 kr. HÁTÍÐARRÉTTIR Björg Sigurðardóttir og Hörður Héðinsson Ljósmyndir: Guðmundur Ingólfsson Þriðja bókin í flokknum Islenskar gæðauppskrift- ir en áður hafa komið út Grillréttir og Pastaréttir. Hér er að finna fjölda uppskrifta að gómsætum hátíðarréttum. Glæsileg- ar ljósmyndir fylgja hverri uppskrift auk ein- faldra og þægilegra leið- beininga. Ritstjórar bók- arinnnar, Björg og Hörð- ur, sjá einnig um upp- skriftir og matreiðslu hjá Nýjum eftirlætisréttum, matreiðsluklúbbi Vöku- Helgafells. 80 blaðsíður. Vaka-Helgafell hf. ISBN 9979-2-0379-X Leiðb.verð: 2.480 kr. HEIMSSÖGUATLAS IÐUNNAR Ritstjóri: Pierre Vidal-Naquet ísl. ritstjóri: Helgi Skúli Kjartansson Þýðing: Óskar Ingimarsson og Dagur Þorleifsson Heimssöguatlas Iðunnar er glæsilegt, viðamikið og stórfróðlegt yfirlitsrit í kortum, myndum og máli, sem veitir yfírsýn um gjör- valla mannkynssöguna frá árdögum til tæknialdar samtímans og greinir ffá atburðum og örlagaþátt- um sögunnar. Heimssögu- atlas Iðunnar er ótæm- andi brunnur fróðleiks og lærdóms um þjóðir og álf- ur, menn og málefni, framandi lönd og fomar minjar. Hver opna er sjálf- stæð og er saga ákveðins tímaskeiðs eða svæðis sögð þar í hnitmiðuðum en um leið efnismiklum texta sem studdur er vönduðum og ítarlegum sögukortum og fjölda glæsilegra litmynda. Saga mannkyns er hér sögð á myndrænan og skýran hátt svo að allir, ungir sem eldri, geta tileinkað sér hana og haft ómælt gagn og gaman af. Fjöldi virtra fræðimanna vann að samningu bókarinnar, sem er ómetanleg viðbót við Islenskan söguatlas. 356 blaðsíður. Iðunn ISBN 9979-1-0290-X Leiðb.verð: 12.980 kr. HELGILEIKAR fyrir skóla og heimili Guðrún Kristín Magnúsdóttir Hin norrænu jól, menn- ingararfur forfeðranna. Myndskreytt handrit með útskýringum eftir verð- launahöfundinn — eins og henni einni er lagið. 9+9 blaðsíður. Freyjukettir ISBN 9979-895-96-9 Leiðb.verð: 990 kr. HRYNJANDI ÍSLENZKRAR TUNGU Siguriur Kriitófir Piturtluu HRYNJANDI ÍSLENZKRAR TUNGU Sigurður Kristófer Pétursson Höfundur bókarinnar þóttist taka eftir því, að fagurt ritmál væri háð einhverjum lögmálum og 80

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.