Bókatíðindi - 01.12.2001, Blaðsíða 28
Þýddar barna- og unglingabækur
tveggja; drauminn um
frama á leiksviðinu og
fyrstu ástina. Ymislegt
sem verður á vegi hans
þessa köldu vetrardaga í
Stokkhólmi vekur hann
til umhugsunar um það
hver só sekur og hver
saklaus, hver hetja og
hver huglaus, hvað sé
raunverulegt og hvað til-
heyri leiksviðinu.
223 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2217-9
Leiðb.verð: 2.490 kr.
JÓLASÖGUR FRÁ
ÝMSUM LÖNDUM
Bob Hartmann tók
saman
Þýðing: Hreinn S.
Hákonarson
Góðar sögur fylgja ætíð
jólum og þær kunna allir
að meta. Sögur þessarar
bókar höfða til allra ald-
urshópa. Margar sögur
hafa orðið til um víða
veröld kringum jólin,
sögur með ævintýrablæ,
sögur þar sem kraftaverk
gerast og undur, sögur úr
daglegu lífi. Þannig sögur
eru hér í þessari bók. All-
ar vekja þær með lesand-
anum gleði og ánægju,
margar eru fullar af hlýrri
kímni og vísdómi þar
sem kærleikur og um-
hyggja er í öndvegi.
117 bls.
Skálholtsútgáfan
ISBN 9979-765-12-7
Leiðb.verð: 1.780 kr.
KAFTEINN OFURBRÓK
OG ÁRÁS
KOKHRAUSTU
KLÓSETTANNA
Dav Pilkey
Þýðing: Bjarni Karlsson
Varið ykkur! Kafteinn
Ofurbrók er mættur aftur
til leiks í splunkunýrri
bók. Georg og Haraldur
eru yfirleitt mjög ábyrgir
drengir en þegar eitthvað
svakalegt gerist eru þeir
yfirleitt ábyrgir fyrir því.
Fyrst eyðileggja þeir
hugvitskeppnina í skól-
anum og síðan búa þeir
óvart til heila herdeild af
kolgrimmum, kokhraust-
um klósettum. Getur ein-
hver stöðvað þessi óseðj-
andi klósett?! Þetta er
einmitt verkefni fyrir
Kaftein Ofurbrók!
170 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-761-40-7
Leiðb.verð: 2.480 kr.
KLUKKAN
Judy Hamilton
ísl. texti: Kristján
Hreinsson
Bókin Klukkan er hin 45.
í vinsæla bókaflokknum
Bókaverslunin
*diwct
iækjartúni 4 - Hólmavík S: 451 3458
Skemmtilegu smábarna-
bækurnar. Þar er börn-
unum kennt á skemmti-
legan hátt að þekkja
klukkustundirnar bæði í
bundnu og óbundnu
máli.
Falleg - vönduð - ódýr.
25 bls.
Bókaútgáfan Björk
ISBN 9979-807-63-6
Leiðb.verð: 365 kr.
PKLÚKKAW SEM
GEKK EIWS 00
HEWW/ SÝW0/ST
KLUKKAN SEM GEKK
EINS OG HENNI
SÝNDIST
Þer Nilsson
Þýðing: Sigrún
Árnadóttir
Fyrir þann sem kann á
klukku er einfalt að
passa tímann, mæta á
réttum tíma í skólann og
missa ekki af barnasjón-
varpinu. En hvað ef mað-
ur á klukku sem ekki er
hægt að stóla á? Virki-
lega dularfulla klukku
sem gengur alveg eins og
henni sýnist? I þessari
bráðskemmtilegu sögu
fást svör við því - en eitt
er víst að vika með svo-
leiðis klukku verður ekki
leiðinleg!
94 bls.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2174-1
Leiðb.verð: 1.890 kr.
kötturinn
_ MEÐ
> HATTINN
.-•Ira-.
i
DR. SEUSS
KÖTTURINN MEÐ
HATTINN
Dr. Seuss
Þýðing: Böðvar
Guðmundsson
Loksins er Kötturinn með
hattinn kominn aftur og
nú í þýðingu Böðvars
Guðmundssonar. Sigga
og bróðir hennar eru ein
heima og þeim leiðist.
„En bíðum nú við, í hús-
inu HRIKTIVIÐ! Og hvað
við hrukkum við. Við
heyrðum að einhver gekk
hratt inn! Og síðan sáum
við koma sjálfan köttinn
með hattinn!"
Þetta ástsæla verk er
ein af perlum barnabók-
menntanna og á eflaust
eftir að gleðja næstu kyn-
slóðir með hlýlegri
kímni sinni og ærslum.
61 bls.
Iðunn
ISBN 9979-1-0403-1
Leiðb.verð: 1.980 kr.
26