Bókatíðindi - 01.12.2001, Side 86
Fræði og bækur almenns efnis
AF JARÐLEGUM
SKILNINGI
Atli Harðarson
Heimspeki er ekki bara
hárfínar rökfærslur og
skarpleg greining á hug-
tökum. Hún er líka til-
raun til að komast að
kjarna hvers máls, sjá
samhengi sem ekki ligg-
ur í augum uppi og
tengja saman þekkingu
úr ólíkum áttum.
Fyrri heimspekirit
Atla Harðarsonar Afar-
kostir {1995) og Vafamál
(1998) hafa vakið athygli
og hlotið góða dóma. I
þessari bók tengir hann
saman siðfræði og ver-
aldarhyggju Davids
Hume, þróunarkenningu
Darwins og hugmyndir
Alans Turing um altæka
vél. Ur þessum efniviði,
sem er allt í senn heim-
speki, líffræði og tölvu-
fræði, býr Atli til sína
eigin mynd af tilverunni
— mynd sem sýnir
hvernig hugsun manns-
ins, menning og siðferði
eru hluti af ríki náttúr-
unnar.
180 bls.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-464-3
Leiðb.verð: 2.980 kr.
ANDVARI 2001
Nýr flokkur XLIII,
126. ár
Ritstj.: Gunnar
Stefánsson
Aðalgrein Andvara er
æviþáttur um Snorra
Hallgrímsson lækni,
skráður af Árna Björns-
syni lækni. Snorri var sá
læknir landsins á sinni
tíð sem einna mestrar
virðingar naut fyrir störf
sín. Hann var forgöngu-
maður í bæklunarlækn-
ingum og síðar lengi pró-
fessor og yfirlæknir á
handlækningadeild
Landspítalans. — Annað
efni í ritinu varðar eink-
um íslenskar bókmenntir
og menningarsögu. Þar
má nefna grein um komu
þýska bókaútgefandans
Heinrich Brockhaus til
Islands 1867, um sögur
Svövu Jakobsdóttur,
fyrstu ljóðabók Sigfúsar
Daðasonar og um eðli og
einkenni sjálfsævisagna.
168 bls.
Hið íslenska
þjóðvinafélag
Dreifing: Sögufélag
ISSN 0258-3771
Leiðb.verð: 1.700 kr.
Áfrani
foreldrar
Rannsokn um sameiqinlega forsjá og
velferð barna vlð skilnað foreldra
Sigrún JGIiusdöttlr og Nanna K. Sigurðardóttir
ÁFRAM FORELDRAR
Sameiginleg forsjá og
velferð barna eftir
skilnað foreldra
Sigrún Júlíusdóttir og
Nanna Sigurðardóttir
Bókin íjallar um líf fjöl-
skyldna eftir skilnað.
Komið er inn á foreldra-
samstarf, hagsmuni barna
og gildi fjölskyldutengsla
eftir skilnað og brugðið
ljósi á þróun kyn- og for-
eldrahlutverka. Byggt er á
víðtækum fræðiheimild-
um og gerð grein fýrir
niðurstöðum nýrrar ís-
lenskrar rannsóknar á
þessu sviði. Niðurstöð-
urnar sýna almennt já-
kvæða reynslu af sameig-
inlegri forsjá. Jafnframt
koma fram vonbrigði for-
eldra og gagnrýni vegna
skorts á upplýsingum og
ráðgjöf um þetta eihi.
Samanburður við nið-
urstöður eldri rannsókn-
ar á fráskildum foreldr-
um sem ekki fóru sam-
eiginlega með forsjá sýn-
ir að viðhorf kynjanna til
foreldrasamstarfs hafa
breyst á undanförnum
árum.
184 bls. kilja.
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-54-433-3
Leiðb.verð: 2.700 kr.
B E V E R
S A G A
BEVER SAGA
Christopher Sanders
bjó til prentunar og
ritaði inngang
Bever saga er norræn
þýðing á engilnor-
mannska söguljóðinu
Boeve de Haumtone. Sag-
an um Bever var feikilega
vinsæl á miðöldum og er
til á öllum helstu þjóð-
tungum Evrópu. Fimm
megingerðir íslenska
textans eru varðveittar og
eru þær prentaðar í útgáf-
unni samhliða texta eng-
ilnormannska kvæðisins.
I inngangi er rækileg
greinargerð fyrir handrit-
um sögunnar og birt sýn-
ishorn af rithöndum
skrifara þeirra.
575 bls. kilja
Stofnun Árna
Magnússonar
Dreifing:
Háskólaútgáfan
ISBN 9979-819-68-5
Verð: 4.800 kr. án vsk.
84