Bókatíðindi - 01.12.2001, Side 98
Fræði og bækur almenns efnis
BJÖRN BJARXASON j Sigfinnur Þorleifsson
tw A
I HITA KAI.J) \ STRIÐSINS í nærveru
I HITA KALDA
STRÍÐSINS
Björn Bjarnason
Fáir hafa fjallað af meiri
þekkingu um stefnu
Islands í utanríkis- og
öryggismálum en Björn
Bjarnason. Hann hefur
skrifað um þau efni með
reglubundnum hætti í
meira en aldarfjórðung —
jafnt sem blaðamaður,
embættismaður og stjórn-
málamaður.
I þessari bók er að
finna úrval blaðagreina
hans um utanríkis- og
alþjóðamál. Björn kemur
svo víða við í þessum
skrifum að kalla má að
bókin sé eins konar víð-
sjá kalda stríðsáranna á
Islandi í ljósi þróunar á
alþjóðavettvangi.
Mjög fróðlegt og ein-
staklega læsilegt rit um
höfuðdrættina í íslenskri
utanríkis- og öryggis-
stefnu.
352 bls.
Nýja Bókafélagið
ISBN 9979-764-22-8
Leiðb.verð: 3.480 kr.
í NÆRVERU
Nokkrir sálgæsluþættir
Sigfinnur Þorleifsson
Kápumynd: Kristín
Gunnlaugsdóttir
Bókin fjallar um hvernig
maður nálgast annan
mann, einkum í sálar-
neyð, og reynir að leggja
lið, styrkja og leiða.
Hvernig þeir ganga sam-
an svo lengi sem annar
þarfnast stuðnings til
þess að finna eigin styrk
og trú á lífið á ný. Bókin
er góð hjálp öllum þeim
sem hlúa vilja að and-
legri velferð annarra.
Hún vekur upp vitund
um hvað felst í að hlusta
á aðra og skilja hvað
þeim liggur á hjarta. Hún
leiðbeinir og hvetur til
skilnings og hluttekning-
ar, til að skynja dýpstu
tilfinningar fólks og and-
legt ástand þess.
144 bls.
Skálholtsútgáfan
ISBN 9979-765-13-5
Leiðb.verð: 2.980 kr.
ÍSLAND í ALDANNA
RÁS
20. öldin 1900-1950
lllugi Jökulsson o.fl.
Þetta stórvirki í íslenskri
bókaútgáfu kom út fyrir
síðustu jól og seldist upp
á svipstundu. Bókin er
spegilmynd fyrri hluta
20. aldar af íslensku
þjóðlífi - ritverk um
stórbrotna tíma í sögu
lands og þjóðar. Bókin er
í stóru broti, með ítarleg-
um texta og vel á annað
þúsund ljósmynda og
skýringarkorta. Aðalhöf-
undur bókarinnar er 111-
ugi Jökulsson en hann
hefur á undanförnum
árum viðað að sér miklu
efni í ritverkið. Auk 111-
uga hefur fjöldi manna
komið við sögu við
greinaskrif og öflun
myndefnis.
í bókinni ísland í ald-
anna rás 1900-1950 er 111-
ugi á heimavelli því bæði
stórviðburðir og daglegt
amstur öðlast nýtt líf í
liprum, fróðlegum og
hnyttnum texta hans.
Efnistök Illuga og einstök
fundvísi á markverð atvik
gefa bókinni skemmtilegt
yfirbragð. ísland í ald-
anna rás 1900-1950 segir
frá staðreyndum en túlk-
ar jafnframt tíðaranda. I
bókinni er greint frá stór-
viðburðum og merkistíð-
indum, veðurfari, nátt-
úruhamförum, skipsköð-
um og sakamálum.
Stjórnmálum og þjóðfé-
lagsátökum eru gerð góð
skil, sagt frá menningu og
listum, lífsbaráttu al-
þýðufólks, sérkennileg-
um skoðunum og deilum.
í upphafi hvers árs er
atburðaannáll auk veður-
lýsingar ársins. Einnig er
gerð grein fyrir helstu
fréttum frá útlöndum.
470 bls.
JPV ÚTGÁFA
ISBN 9979-761-21-0
Leiðb.verð: 12.980 kr.
■ ■
ÍSLAND
i uldunna rás
ÍSLAND í ALDANNA
RÁS
20. öldin 1951-1975
lllugi Jökulsson o.fl.
Þetta er annað bindi í
þókaflokknum um sögu
íslendinga á 20. öld.
Fyrsta bindið, sem kom
út íyrir síðustu jól, hlaut
fádæma góðar móttökur
og seldist upp á svip-
stundu.
I þessu bindi er fjallað
um tímabilið 1951-1975
sem var afar viðburðaríkt
í sögu þjóðarinnar. Bókin
er í stóru broti með vel á
annað þúsund ljósmynda
og skýringarkorta. ítarleg
upptalning er á atburðum
hvers árs og nokkrum
helstu viðburðum gerð
sérstök skil. Þar er stuðst
við nýjustu rannsóknir
fræðimanna en sagan
jafnframt sögð á líflegri
og tilþrifameiri hátt en
við eigum að venjast.
Stjórnmálalífinu eru gerð
góð skil og með aðstoð
sérfræðinga er fjallað á
greinargóðan og aðgengi-
legan hátt um fjölmörg
svið þjóðlífsins - efna-
hagsmál, atvinnumál,
menningu og listir, dæg-
urmenningu og hvaðeina
sem nöfnum tjáir að
nefna.
En þar með er ekki öll
sagan sögð. Á sinn sér-
stæða hátt fjallar Illugi
einnig um líf fólksins í
landinu, gleði þess og
96