Bókatíðindi - 01.12.2001, Side 108
Fræði og bækur almenns efnis
LÍNDÆLA
Sigurður Líndal sjötugur
Afmælisrit til heiðurs
Sigurði Líndal 2. júlí
2001. Viðfangsefni 41
höfundar eru fjölbreytt
með skrifum um lög-
fræði, sagnfræði, félags-
vísindi og heimspeki.
Vandað fræðirit ásamt
ritaskrá Sigurðar.
706 bls.
Hið ísl. bókmenntafélag
ISBN 9979-66-101-1
Leiðb.verð: 6.500 kr.
LÖGIN
Fédéric Bastiat
Þýðing: Brynjar
Arnarson
Lögin eru sígilt verk um
hlutverk laga og ríkis-
valds. Var til réttlæti
áður en menn settu lög?
Eiga lög að hindra órétt-
læti eða eiga þau að
útdeila gæðum? Er nauð-
synlegt að takmarka lög-
in til að koma í veg fyrir
óréttlæti? I Lögunum
færir Bastiat sterk rök
fyrir frelsi og takmörkun
ríkisvalds og veltir fyrir
sér muninum á lögum og
ólögum. Lögin komu
fyrst út í Frakklandi árið
1850.
73 bls.
Andríki
ISBN 9979-60-665-7
Leiðb.verð: 1.500 kr.
MANNKYNIÐ
OGMUNÚÐIN
MANNKYNIÐ OG
MUNÚÐIN
Kynlífssaga mannsins
Reay Tannahill
Þýðing: Kristinn R.
Ólafsson
Saga kynlífs mannsins
frá upphafi til vorra
daga. Otrúlegt verkefni
sem Tannahill leysir
snilldarlega. Hún byrjar
á upphafinu þegar mað-
urinn var að breytast í
herra konunnar, fikrar
sig til Grikkja, Rómverja
og kristinna manna, og
þaðan í dularfullan kyn-
lífsheim Austurlanda.
Fjallað er um gríska titr-
ara, getnaðarvarnir á
tímum Faraós, kynlífs-
leiðbeiningar Taoista,
tyrkneska geldinga og
japanskar geishur - og er
þá fátt eitt talið. Þegar
kemur fram á okkar tíma
segir m.a. frá aðferð
enskra kvenna til að end-
urheimta meydóminn og
kynlífsbyltingunni á 8.
áratug 20. aldar.
Mannkynið og munúð-
in hefur hvarvetna hlotið
mikið lof fyrir að sam-
eina í eitt góða fræði-
mennsku og mjög
skemmtilega frásögn sem
kemst afar vel til skila í
frábærri þýðingu Krist-
ins R. Ólafssonar.
342 bls.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 9979-9509-9-4
Leiðb.verð: 4.590 kr.
MEÐ LÍFIÐ í
LÚKUNUM
Gamansögur af
íslenskum læknum
Ritstj.: Guðjón Ingi
Eiríksson og Jón
Hjaltason
Einstæðar sögur af
„læknirum" þessa lands.
Hetjur hvíta sloppsins
taka til máls og leyna
engu. Ólafur Ólafsson,
landlæknir þjóðarinnar,
auglýsir eftir sjúkling-
um, Jónas Franklín hrós-
ar konu, Pétri Péturssyni
verður orðfall (jú, alveg
satt), Ólafur Halldórsson
vill frið í viðtalstímum
og Lýður Árnason ljóstr-
ar upp um lífið á Borgar-
og Landspítala (svo ekki
sé nú minnst á Ingvar
Teitsson). Þjóðsagnaper-
sónurnar Guðmundur
Hannesson og Guð-
mundur Björnsson tala í
kapp við Guðmund Karl
- og Ulfar Þórðarson
bregður á leik.
Með lífið í lúkunum,
barmafull af gleðskap
sem lengir lífið en styttir
stundirnar.
184 bls.
Bókaútgáfan Hólar
ISBN 9979-9509-1-9
Leiðb.verð: 2.980 kr.
Poul Vad
Norðan Vatnajökuls
NORÐAN
VATNAJÖKULS
Poul Vad
Þýðing: Úlfur Hjörvar
Danski listfræðingurinn
og rithöfundurinn Poul
Vad kom til íslands
kringum 1975. Ferðinni
var heitið í Hrafnkelsdal
og hún var nokkurs kon-
ar pílagrímsferð á slóðir
Hrafnkels sögu Freys-
goða. Bókin segir frá
þessari ferð. Hún er sam-
bland af ferðasögu, frá-
sögnum, ritgerðum og
bókmenntafræði. Árið
1999 hlaut þýsk útgáfa
bókarinnar verðlaun í
Austurríki sem besta
ferðabók ársins.
160 bls.
Ormstunga
ISBN 9979-63-31-0
Leiðb.verð: 2.900 kr.
106