Bókatíðindi - 01.12.2001, Blaðsíða 126
Saga, ættfræði og héraðslýsingar
anlands sem verið hafa
hvað mest í sviðljósinu
síðustu misserin. Bókin
er þó framar öðru merk
heimild um búskapar- og
lifnaðarhætti Austfirð-
inga á 19. öld. Kirkju-
myndir jóns biskups
Helgasonar úr Múlasýsl-
um eru í fyrsta skipti birt-
ar í bókinni.
639 bls.
Sögufélag - Ornefna-
stofnun Islands
ISBN 9979-9059-5-6
Leiðb.verð: 4.800 kr.
SAGA HÚSAVÍKUR IV.
BINDI
Sæmundur Rögnvalds-
son og Björn Helgi
Jónsson
Saga Húsavíkur IV. bindi
fjallar um frumvinnslu-
greinar atvinnulífsins í
bænum frá því að þétt-
býli tók að myndast við
Skjálfanda og fram til
samtímans. Itarlegir kafl-
ar eru um landbúnað,
fiskveiðar, selveiðar,
vinnslu sjávarafla og iðn-
að. Bókina prýðir fjöldi
ljósmynda sem sýna
atvinnuhætti, atvinnu-
tæki og einstaklinga sem
tengdust uppbyggingu
athafnalífsins á Húsavík
á 20. öld.
Um 400 bls.
Húsavíkurkaupstaður
Dreifing: Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar
ISBN 9979-9366-4-9
Leiðb.verð: 4.950 kr.
SAGA REYKJAVÍKUR
í þúsund ár 870-1870
Þorleifur Óskarsson
Hin glæsilega og eigu-
lega ritröð um Sögu
Reykjavíkur er nú til
enda leidd með útgáfu
þessara tveggja loka-
binda verksins um tíu
alda tímabilið frá 870 til
1870.
I fyrri hlutanum er
m.a. farið yfir sögu land-
náms og fyrstu byggðar á
íslandi, fjallað um þétt-
býlismyndun og upphaf,
ris og hnignun Innrétt-
inganna á átjándu öld.
Þar kemur margt spenn-
andi f ljós, allt frá fyrsta
verkfallinu á íslandi til
þorpsmyndunar í
Reykjavík og fjallað er
um mannréttindi og lífs-
baráttu íbúanna.
í seinni hlutanum fer
bærinn að taka á sig
skýrari mynd höfuðstað-
ar. Horft er til mannlífs
út frá ýmsum sjónar-
hornum, reynt að setja
sig í spor stríðandi al-
þýðu jafnt sem veislu-
glaðra góðborgara og
erlendra ferðalanga sem
tóku að heimsækja land
og þjóð í byrjun 19. ald-
ar. Margar myndir sem
teknar voru á íslandi í
árdaga ljósmyndunar eru
birtar í bókinni og marg-
víslegar töflur og ítar-
upplýsingar eru dregnar
fram í dagsljósið. Um
leið eru efnisþættir
tengdir samtímanum í
nútímalegu myndmáli á
einkar viðfelldinn hátt.
Þannig bera bækurnar
samtíma sínum vitni um
leið og þær veita okkur
innsýn í horfna heima. í
verkinu er reynt að
glöggva sig á þróun
atvinnulífsins um leið og
fylgst er með sprotum
nýrrar menningar, í
menntamálum, stjórn-
málum, leiklist, tónlist
og félagsmálum. Saga
Reykjavíkur er saga allra
landsmanna og á heima
á öllum íslenskum
menningarheimilum.
444 bls. f.bindi.
486 bls. s.bindi.
ISBN 9979-1-0417-1
/-0418-X
Iðunn
Leiðb.verð: 15.800 kr.
hvort bindi.
SKÁK í HUNDRAÐ ÁR
SKÁK í HUNDRAÐ ÁR
Saga Taflfélags Akur-
eyrar og Skákfélags
Akureyrar
Jón Þ. Þór
Hér er rakin saga Taflfé-
lags Akureyrar og Skák-
félags Akureyrar í
hundrað ár. Fjallað er
um fjölbreytta og viða-
mikla starfsemi skáklist-
arinnar á Akureyri, m.a.
Akureyrarmót, Haustmót
og Skákþing Norðlend-
inga auk fjölmargra ann-
arra móta.
í bókinni er að finna
greinar um skákmeistara,
stjórn félagsins, móts-
töflur og vísur, auk skáka
sem eru hátt á annað
hundrað. Þá er fjöldi
mynda í bókinni.
240 bls.
Skákfélag Akureyrar
Ásprent - POB ehf.
ISBN 9979-60-691-6
Leiðb.verð: 4.850 kr.
SJÚKRAÞJÁLFARATAL
1940-2000
Ritstj.: ívar Gissurarson
og Steingrímur
Steinþórsson
í riti þessu er að finna
upplýsingar um 450
sjúkraþjálfara sem starfað
hafa á Islandi auk ágrips
af sögu sjúkraþjálfunar
hér á landi. Mynd er af
langflestum sjúkraþjálf-
urum. Bókin er gefin út í
tilefni af 60 ára afmæli
Félags íslenskra sjúkra-
þjálfara.
254 bls.
Mál og mynd
ISBN 9979-9438-9-0
Leiðb.verð: 6.200 kr.
STUNDIR Á
STRÖNDUM
HaukurJóhannesson
Bókin Stundir á Strönd-
um frá Kolbeinsvík norð-
ur á Geirhólm er sér-
prent þáttar sem birtur