Orð og tunga - 2023, Page 98
Katrín Axelsdóttir: Að eiga það sem maður er 89
kafla). Hugsanlega er X á þgf tiltölulega ungt fyrirbæri. En það gæti
vitaskuld verið miklu eldra. Að því er ekki auðvelt að komast, skilyrði
til rafrænnar leitar eru heldur víð og samhengið sem um ræðir er
kannski ekki ýkja líklegt til að rata á bækur.
Í 5. kafla var bent á ákveðin líkindi við órjúfanlega eign, orð
skipanin (nafnorð á undan forsetningarlið sem eignartáknun) er sú
sama í báðum tilvikum og þarna er líka um að ræða eitthvað sem er
samgróið fólki ef svo má segja (líkamshlutar og innræti). Það er því
ekki mjög langsótt að gera ráð fyrir áhrifum frá orðalagi á borð við
höndin á mér. Ef slíkt orðalag er á einhvern hátt fyrirmynd að X á þgf
mætti hugsa sér að hægt væri að þrengja tímarammann eitthvað. En
táknun órjúfanlegrar eignar með forsetningarlið á sér langa sögu í
málinu, ýmis dæmi eru um þessa táknun í fornu máli og samsvarandi
táknun er til í öðrum Norðurlandamálum. Í fornu máli og raunar allt
fram á 18. öld virðist þó annars konar táknun órjúfanlegrar eignar
(s.s. hönd mín) hafa verið ríkjandi (sjá Steingrím Þórðarson 1979:28–
29). Það er því ekki fyrr en frekar nýlega í málsögunni að sambönd á
borð við höndin á mér ná yfirburðastöðu.24 Algengt orðalag er auðvitað
líklegra til að hafa áhrif á aðra þætti í málinu. 19. öld er því kannski
ekki svo ósennilegur upphafstími X á þgf þótt auðvitað verði ekkert
um það fullyrt.
Eins og nefnt var í 5. kafla er hugsanlegt að í elstu dæmum um
helvítið á þér vísi helvíti til líkamshluta, munns eða andlits, og þá væru
þessi dæmi ekki sambærileg þeim samböndum sem hér er fjallað um
þar sem eigandi samsvarar eign. Ef þetta er raunin má hugsa sér að
orðalagið helvítið á þér (‘munnurinn/andlitið á þér’) sé kveikjan að
mynstrinu X á honum/henni. Orðið helvíti hefur ýmsar merkingar og
er algengt sem skammaryrði um mann. Segðina helvítið á þér (‘munn
urinn/andlitið á þér’) hefur auðveldlega mátt túlka þannig að helvíti
vísaði til manns og þar með er komið upp mynstur sem önnur
skammaryrði um fólk gátu gengið inn í. Þetta verður þó aðallega virkt
í þriðju persónu enda gamalkunnug sambönd á fleti fyrir í annarri
persónu (helvítið þitt, þrjóturinn þinn).
6.5 Til hvers er vísað?
Flest dæmi sem fundist hafa um X á honum/henni vísa til fólks, rétt
24 Á síðustu árum má raunar greina dálítinn viðsnúning, æ oftar heyrist orðalag á
borð við hárið mitt, húðin mín, brjóstin mín sem er í ætt við hið almenna orðalag
fornmáls en nafnorðið er þó með viðskeyttum greini.
tunga25.indb 89 08.06.2023 15:47:16