Orð og tunga - 2023, Page 172
Ármann Jakobsson og Guðrún Kvaran: Götunöfn í Reykjavík 163
vötnum höfuðborgarsvæðisins en sú hugmynd fékkst aldrei staðfest
af skipulagsráðinu. Hugmyndum um götunöfn var aftur á móti vel
tekið en hins vegar hefur enn ekki verið byggt jafn mikið á þessu svæði
og þá var stefnt að. Eina hverfið sem byggst hefur er Brunnahverfi þar
sem nöfnin voru sótt til ásynja í SnorraEddu auk annarra goðvera sem
tengdust brunnum sérstaklega. Þannig heitir gata á jaðri hverfisins
Mímisbrunnur en meðal annarra götunafna eru Urðarbrunnur, Friggjar
brunnur, Iðunnarbrunnur, Lofnarbrunnur, Gefjunarbrunnur, Sifjar brunn-
ur, Gerðarbrunnur, Freyjubrunnur og Sjafnarbrunnur. Nefndin hafði
fleiri nöfn kvenkyns goðvera í pússi sínum en fjöldi gatna varð ekki
meiri og raunar voru ýmsir tískustraumar í fjölda gatna á meðan
hópurinn starfaði. Upp úr aldamótum 2000 var reynt að nota sem
fæst nöfn en viðhorfin voru önnur 20 árum síðar.
Aðeins eitt annað hverfi er komið í byggð undir Úlfarsfelli en það
er Tjarnarhverfið. Þar eru enn sem komið er aðeins fjórar götur: Gæfu
tjörn, Jarpstjörn, Silfratjörn og Rökkvatjörn. Eins og sjá má eru hér á ferð
íslensk hestanöfn en starfshópurinn lagði borginni til 36 önnur nöfn
af sama toga í greinargerð sem skilað var árið 2002. Aðrar ending ar
sem voru ráðgerðar undir Úlfarsfelli voru vatn og á. Lagt var til að
nöfnin úr áahverfinu væru sótt í íslenskt landslag og má þar nefna
Myrká, Krossá og Gilsá en greinargerðin geymir ríflega 30 nöfn. Þá var
um aldamótin skipulagt tvískipt vatnahverfi og lagði starfshópurinn
til að þar væru annars vegar notuð almenn nöfn (Ljósavatn, Dýjavatn,
Veiðivatn og Djúpavatn eru fjögur af 24 nöfnum sem lögð voru til)
en hins vegar nöfn úr dýraríkinu (Álftavatn, Svanavatn, Æðarvatn,
Hvalvatn, Svínavatn og Sænautavatn). Hér má glöggt sjá fjölbreytnina
í tillögum starfshópsins en um leið samræmið. Nýta átti endingar í
öllum þessum hverfum þar sem endingin var sótt í ár, vötn, tjarnir og
brunna.
Á teikniborðinu þá var líka hverfi við Rauðavatn sem átti að vera
iðnaðarhverfi. Þótti starfshópnum tilvalið að kalla það Merkurhverfi
enda skóglendi á svæðinu en vegna iðnaðarins yrði forliðurinn sótt
ur í dvergatal Völuspár og SnorraEddu. Dverganöfnin eru ansi
mörg og hefði verið auðvelt að nefna einar 60 götur með fallegum og
eftirminnilegum nöfnum. Árið 2007 var aftur komið að þessu hverfi í
skipulagi en nú þótti endingin heiði eiga betur við enda var farið að
nota nafnið Hólmsheiði um þetta svæði, meðal annars í umræðu um
hugsanlegt flugvallarsvæði. Nefndar voru einar sjö götur sem hétu
Hólmsheiðarvegur, Dvalinsheiði, Fundinsheiði, Þorinsheiði, Þráinsheiði,
Durinsheiði og Reginsheiði. Auk þess fengu fjögur hringtorg nöfnin
tunga25.indb 163 08.06.2023 15:47:17