Læknaneminn - 01.10.1993, Síða 15
gáfu besta næmið og sértækið.
Verkir teljast útbreiddir ef þeir
eru:
• bádutn megiti í líkatna.
• fyrir ofan og neðan mitti.
• ekki eingöngu bundnir við
útlimi.
Þreifað er á 18 ákveðnum stöðum
(tafla 1 og mynd 1). Þreifing skal
gerð með þumli með þrýstingi sem
samsvarar fjögurra kflóa krafti. Hver
staður telst jákvæður við skoðun, ef
sjúklingur segir þreifingu
sársaukafulla. Athuga þarf: Ekki er
nóg að sjúklingur sé viðkvæmur á
viðkomandi stað.
MISMUNAGREINING
Hafa ber í huga hina fjölmörgu
sjúkdóma, er geta valdið
vefjagigtareinkennum (sekúnder
vefjagigt). Meðal þeirra sjúkdóma
eru rauðir úlfar, Sjögrens-heilkenni,
iktsýki og efnaskiptasjúkdómar.
Aðrir sjúkdómar, sem hafa ber í
huga, þegar sjúkdómsgreining
vefja-gigtarsjúklings er ekki örugg,
eru fjölvöðvagigt, geðsjúkdómar,
síþreyta (chronic fatigue syndrome,
CFS) og myofascial pain syndrome
(MFP) (13).
MFP er oft ruglað saman við Mynd 1. Sársaukapunktar “tender points” við greiningu vefjagigtar.
Tafla 1. Staðsetning sársaukapunkta "tenderpoints"
við greiningu vefjagigtar. Athugið að allir
sársaukapunktar eru báðutn tnegin í líkatna, alls 18.
Hnakki við festu musculi suboccipitalis
Háls við fremri brún þverhryggjatinda C5-C7
Trapesíus ámiðjuvöðvansofantil
Súpraspínatus rétt ofan við miðlægan enda spina scapulae
Annað rif aðeins hliðlægt við önnur costochondralmót
Olnbogi 2 cm fjarlægt við epicondylus lateralis
Rass í efri ytri fjórðung rassvöðvasvæðis
Mjaðmir aftan við trochanter major
Hné yfir miðlægum fitupúða
Oft er nokkurt misræmi milli hlutlægra og
huglægra einkenna við skoðun. Sjúklingur lýsir t.d.
oft þrota í höndum og í liðum, en við skoðun er ekki
hægt að finna nein merki um bólgu. Hins vegar eru til
staðar útbreidd eymsli við þreifingu og þá einkum á
skilgreindum sársaukapunktum (mynd 1).
SKILGREINING
Árið 1990 voru birtar niðurstöður vinnuhóps á
vegum American College of Rheumatology (ACR)
til að finna nothæfa skilgreiningu (klassifíkasjón)
fyrir vefjagigt (12).
Saga um útbreidda verki og sársauki við
þreyfingu á 11 af 18 fyrirfram
ákveðnum stöðum á líkamanum
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.
13