Læknaneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 75

Læknaneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 75
og yfirleitt sem skammaryrði og það gleymist oft að pólitíkusar eru kjömir af fólkinu sjálfu. Ég sé ekki að stofnun eins og Ríkisspítölunum verði betur eða verr stjómað þó að einhverjir aðrir komi þar nærri. Hverjir aðrir era það sem annars ættu að stjóma? Við þyrftum þá líklega lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða, verkfræðinga og heilsuhagfræðinga, tölvufólk og fleiri stéttir. Er líklegt að það yrði mikill einhugur í þessum hópi fagfólks. Ég lield að það sé nú nákvæmlega sama hverjir væru við stjómvölinn, í þessu tilfelli á Ríkisspítölum. Ég held að þarna verði alltaf teknar mjög umdeilanlegar ákvarðanir og jafnvel umdeilanlegri en nú em teknar. F.f ég man rétt, þá em heilbrigðisstéttimar tæplega 30 og ekki gætu þær nú allar fengið fulltrúa í slíkri stjóm og mín tilfinnig er sú að hjá mörgum þeirra mætti nú samstarfið vera miklu betra. Þarna yrði þá einhver annarskonar pólitík í gangi. Hvernig er háttað samstarfi þínu og þíns ráðuneytis við starfsfólk í heilbrigðisgeiranum og hversu mikil er samvinna þín og landlœknis? Landlæknir var síðast hér í morgun og samstarf okkar er mjög gott. Við hittumst oft í viku og förum yfir ýmis mál sem að honum snúa. Haim hefur látið sig varða flesta þætti sem lúta að þessum málaflokki í víðasta skilningi. Varðandi sanistarf við aðrar fagstéttir í heilbrigðisgeiranum, þá hygg ég að það samstarf sé mjög náið hér hjá ráðuneytinu. A mínum stutta ferli hér hef ég hitt forrystumenn fjölmargra faghópa og átt við þá gagnlegar viðræður. Ég held að það skipti mjög miklu máli að þetta samstarf sé gott og náið. Ymsir þessir hópar hafa komið fram með miklum krafti til að ná niður kostnaði í heilbrigðiskerfinu, án þess að það komi niður á þjónustu. Ég geri mér það fyllilega ljóst, ekki síst í ljósi fyrri starfa ininna að það er gjörsamlega vonlaust, ef menn ætla sér að ná einhverri hagræðingu og spamaði á viðkomandi stofnunum, ef það starfsfólk sem hlut á að máli er ekki með í þeim leik. Nú hefur það verið þannig hér á landi að ýmis félagasamtök um land allt hafa safnað fyrir og gefið sjúkrastofnunum mikið afþeim tœkjum og búnaði sem þar er notaður. Það kemur einnig mikið á óvart að heyra hversu lítill hluti útgjalda til heilbrigðismála fer í viðhald og endurnýjun tœkjakosts. Hvert er þitt álit á þessu? Það er nú þrátt fyrir ailt mín tilfinning að heilbrigðiskerfið sé býsna vel tækjavætt. Ég hef farið um hluta landsins og mér finnst til dæmis að á heilsugæslustöðvunum sé býsna vel fyrir þessum málum séð, bæði hvað varðar húsakost og tækjabúnað. Ég held líka að við höfum að mestu leyti náð að fylgjast með framþróun í tækjabúnaði hér á stóra fjölþættu, deildarskiptu sjúkrahúsunum og höfum staðið okkur allvel í þessum efnum. Það verður tæplega nokkum tíma hægt að hafa hlutina þannig að við höfum alltaf fullkomnustu og bestu aðstöðuna frá einum tíma til annars. Við emm jú aðeins 250 þúsund sálir og ég held að það verði varla nokkum tíma þannig að við getuin alltaf simit öllum tilvikum hér heima. Við höfum hinsvegar tekið risaskref í þessa vem á síðustu árum og ég nefni hjartaaðgerðimar sem dæmi mn það, cn þær hafa að mestu leyti flust hingað heim. Ég verð nú að segja það að á þeim fáu mánuðum sem ég hef verið hér, liefur ekki mikið verið kvartað yfir þessiun málum í mín eyru, heldur yfir öðm meira. Ég held að við sémn vel á undan mörgum þeim þjóðmn sem við bemm okkur saman við hvað varðar aðstöðu. En auðvitað eigum við að bera okkur saman við það besta. / tíð forvera þíns í embætti var rnikið um það deilt liver œtti að vera hlutur sjúklinga í lyfjakostnaði. Ekki er langt síðan mikil rekistefna var uppi um það hvort sjúklingar á blóðfitulœkkandi lyfjum ætlu að bera allan kostnað við þau sjálfir. A sama tíma er vitað að hœkkuð blóðfita er einn helsti áhœttuþáttur kransœðasjúkdóms og einnig að hjarta- og œðasjúkdóimr eru algengasta dánarorsök Islendinga. Finnst þér rétt að flokka lyf eftir mikilvœgi og láta einn borgu meira en annan fyrir lyfin sín? Það má nú eiginlega setja þetta undir sama hatt og læknisaðgerðir almennt, smnar em bráðaaðgerðir og til að bjarga lífi en aðrar em til að lina þrautir og þrautir em eittlivað sem er afstætt, geta verið núklar og geta verið litlar. Þama er ein siðferðileg spuming í viðbót, sem tengist því sem við vorum að ræða um áðan. Ég held að þessi hlutdeild í lyfjakostnaði hafi sannað gildi sitt, í ljósi þess sem ég sagði áðan um þjónustugjöldin. Menn hafa farið yfir í ódýrari lyf, í samlieitalyf í staðin fyrir sérlyf. Ég held að það hafi verið tekið úl í þessum garði, vegna þessarar hlutdeildar í kostnaðinum. Ég vil hinsvegar taka viðbótarskref í þessum efnum og mun leggja fram frumvarp í þá vem núna. Ég vil freista þess að lækka álagiúngu lyfja, sem efúr sem áður er alltof há. Það verðmyndiuiarkerfi lyfja sem við búmn við er einskonar landbúnaðarkerfi. Innflytjendur LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg. 69
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.