Læknaneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 68
bauð hann mér með sér og konu sinni heim til
tengdaforeldra sinna. Þar borðaði ég góðan málsverð
og síðan vildu þau að ég legði mig, því ég væri
dauðþreyttur. Ég var nú ekki á því og vildi komast á
áfangastað. Ekki svaraði enn í númerinu góða svo
Thomas tók að hringja í alla með nafninu Molinari,
sem fundust í símaskránni. Símtal eftir símtal, og
loksins. Fjarskyld frænka gat fundið símanúmer á
sjúkrahúsinu þar sem hinn rétti Molinari læknanemi
fannst. Mikill fögnuður braust út og ég með det
samme í leigubíl á spítalann. Þar beið Bruno og skildi
ekkert í af hveiju ég var kominn svona snemma. Svo
dró hann upp gömlu ferðaáætlunina. Ég hristi bara
hausinn og hugsaði: “Brunominn”. Seinna komst það
upp að hann hafði eftir allt saman fengið nýju áætlunina
mína. Hann hafði bara ekki nennt að lesa hana!
Ég bjó svo á heimili Brunos og það væri nú
ábyggilega gaman fyrir mannfræðinga að stúdera lífið
á þeim bænum. Heimilislífið var léttgeggjað en þó
tók steininn úr þegar amman og afinn komu í
heimsókn. Þá fyrst varð allt vitlaust. En þetta var
stórskemmtileg blanda, að mínu áliti.
Spítalinn var samsafn húsa sem, að því er virtist,
hafði verið hrúgað upp bara einhvem veginn. þess
vegna var nær ómögulegt að finna t.d. innganginn. A
spítalalóðinni voru miklar byggingarframkvæmdir
og mér var sagt að gera ætti spítalann að eyðnimiðstöð
fyrir suður-Brasilíu. Það átti sem sé að bæta enn við
þann mikla fjölda eyðnisjúklinga sem fyrir var þama.
Húsakynnin voru þó þokkalega þrifaleg. Það var
helst að dúfur gerðu sig heimakomnar þama á húsunum
og virtust hafa sérstakt dálæti á gluggasyllum
skurðstofuglugganna. í miðri aðgerð heyrði ég því
iðulega mikimi vængjaslátt og læti. Og svo má ekki
Þetta er spítalinn. En hvar er inngangurinn ?
gleyma kakkalökkunum. Það þurfti nefnilega að loka
fæðingardeildinni þama um tíma og úða með eitri því
tveir stórir kakkalakkar fundust inni í hitakössum hjá
fyrirbunmum. Maður getur nú svo sem skilið greyin.
það var ekki nema 18-20 stiga hiti á daginn (hávetur),
svo þeim hefur verið kalt.
Ég var viðbúinn svo illu í sambandi við mat að ég
var bara ánægður með mötuneyti spítalans. Maturinn
þar var vel ætur en nokkuð einhæfur þó. Það vom
alltaf hrísgrjón. Og það vom alltaf baunir, svona
brúnar og stórar. Þetta (rice and beans) var svo með
einhverju kjöti og svo var ávöxtur á eftir. Annars
borðaði ég þar ekki oft. í hádeginu var yfirleitt farið
með mig til áts á “týpískum” brasilískum mati og á
kvöldin var grillað. Níu fyrstu kvöldin í röð var
grillveisla og það vom engar SS-pylsur á teinunum.
Þegar ég loks borðaði í heimahúsi svona venjulegan
mat, fékk ég “rice and beans”. Þá fyrst trúði ég því að
Brasilíubúar gætu ekki lifað án “rice and beans”.
Sloppar og önnur hvít föt vora greinilega til þess
að vera í. Þau vom óspart notuð til að sýna hvað þú
værir. Til dæmis, í strætó á morgnana, var hægt að
þekkja lækna/læknanema á því að þeir vom í hvítum
sloppi. Hjúkkumar vora hins vegar í hvítum buxum
og annað starfsfólk stundum í ljósbláu. Ég afrekaði
það einu sinni að fara í Banco do Brasil í sloppnuin en
fékk þó ekki að fara fram fyrir í röðinni (þeir vora
sennilega búnir að fatta að sloppamenn vora ekkert
merkilegri en aðrir).
Þar sem þetta var háskólasjúkrahús vora læknamir
þama annaðhvort prófessorar/kennarar eða læknar í
sémámi. Og svo vora læknanemar. Vora þeir
greinilega færir og vel lesnir, enda eru þeir með
sömu, eða svipaðar bækur og við hér í deildinni. Það
sem kom mér þó á óvart var að allt var á portúgölsku,
bæði bækur og tímarit. Það kom líka á daginn að
aðeins örfáir prófessorar töluðu ensku. Ég varð mér
þó úti um enskan “Cecil” svo ég gæti lesið um það
sem ég sá þama. Það var ekki mikið um einnota hluti
þama. Til dæmis vora allar sprautur úr gleri og þær,
ásamt nálunum vora sótthreinsaðar eftir notkun og
notaðar aftur.
Ég var mest á skurðdeildinni. þar var mest um að
vera fyrir mig, svona grænan. Rútínan varð sú að ég
fór á morgnana og skoðaði dagskrá dagsins og ef mér
fannst lítið áhugavert fór ég á fæðingardeildina eða
eittlivað annað. Einu sinni lenti ég óvart á stofugangi
á GIT-deildinni og á fundi á eftir. Sá fundur fór nú að
62
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.