Læknaneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 47
á íslensku árið 1974 í þýðingu Þorsteins
Vilhjálmssonar (Endimörk vaxtarins. Bókaútgáfa
Menningarsjóðs og Þjóðvinafélagsins). Þar er bent á
að mikilvægir þættir svo sem fólksfjöldi,
matvælaframlciðsla, iðnvæðing, mengun og notkun
tæmanlegra auðlinda fara vaxandi. Maðurinn virðist
gera ráð fyrir því að umhverfi hans þoli slíka þenslu.
Þessir þættir vaxa hins vegar eftir ákveðinni
reiknireglu sem nefnd hefur verið veldisvöxtur
(exponential growth) og því líða ckki margir áratugir
þar til auðlindir jarðarinnar verða uppumar og þar með
er lífríki heimar og mamiskepnumiar ógnað.
Bókin og umfjöllun um þessi mál féllu í góðan
jarðveg hjá 68-kynslóðinni. Nokkrum árum síðar virtist
umræðan þó að miklu leyti fallin í gleymsku fyrir
annarri áhugaverðari um hagvöxt og efnishyggju. A
síðustu árum hefur aftur vaknað áhugi á
umhverfisvernd, nú af mun meiri krafti en áður og
fyrirsjáanlegt er að hann eigi eftir að vaxa og verða
almennari á næstu árum.
A síðustu öldum hefur reyndar oft verið spáð
ragnarökum og þá meira af trúarlegum innblæstri en
vísindalegri þekkingu. Staðreyndir síðustu ára benda
hins vegar til þess að lífríki jarðarimiar sé verulega
ógnað eins og læknirinn og eldliugiim Helen Caldicott
hefur bent á í bók sinni “If You Love this Planet” (4).
Umfangsmesta heilsuvemdin í nánustu framtíð er því
að varðveita það jafnvægi í lífríki jarðariimar sem
pláss er fyrir (3,4,5).
Alþjóðlegir ógnvaldar
Á sjötta áratugnum var fyrst lýst hugtakinu
“samfélagsvandaliðun” (community diagnosis) í
fanddsfræðinni (6). Hér var um að ræða aðferð úl þess
að lýsa heilbrigðisástandi í samfélaginu, greina það
frekar og beita viðeigandi heilsuvemd fyrir heildina.
Samfélagið (conununity) í þessum skilningi getur þá
bæði verið bæjar- og sveitarfélög eða stærri eiiúngar
s.s. öll þjóðin. Hér á eftir hef ég kosið að bæta við nýju
hugtaki í sama anda og tala um “alþjóðavandaliðun”
(intemational diagnosis).
Þeir þættir sem ógna mest heilsu okkar núna og
næstu áratugi eru m.a.: Fólksmergð, fátækt, stríð,
fáfræði, kjamorkuvopn, kjamorkuúrgangsefni og
mengun af efnaiðnaði.
Fólksfjölgunin. Jarðarbúum fjölgar stöðugt með
svipuðum hraða og kanínunum forðum í Ástralíu. Um
árið 1900 var fjöldi jarðarbúa um einn milljarður,
1950 uin tveir milljarðar og 1990 um 5,2 milljarðar.
Gert er ráð fyrir að með svipuðum veldisvexti verði
jarðarbúar 14 milljarðar á miðri næstu öld. Þessi
gríðarlega fjölgun veldur afarmiklum
heilsufarsvandamálum, einkiun í fátækum löndum.
Fólksfjölgunin stafar að miklu leyti af fátækt,
fáfræði fólksins og skorti á getnaðarvömum, en í
sumum tilvikum tníarlegri afstöðu til getnaðarvama
og fóstureyðinga. Ýmsar leiðir hafa verið notaðar til að
takmarka barneignir svo sem skipulagðar
ófrjósemisaðgerðir á Indlandi, en almeim fræðsla og
menntun kvenna er talin árangursríkasta
getnaðarvömin.
Samkvæmt skýrslu OECD (Illness and
Consequences. 1992. Genf. OECD) deyja þúsund
börn í þriðja heiminum á hverri klukkustund vegna
lungnabólgu, niðurgangs eða annarra sjúkdóma sem
hægt er að koma í veg fyrir. Um sex þúsund böm
fimm ára og yngri deyja daglega vegna sjúkdóma
sem hægt er að bólusetja fyrir s.s. mislinga, kíghósta
og stífkrampa. Samtals deyja um þrettán milljóiúr
barna á ári hverju í vanþróuðu löndunum vegna
fátæktar og fáfræði.
Munurinn á milli íbúa á norðurhveli jarðar og
suðurhvelinu vex stöðugt. íbúar norðursins em aðeins
lun 20% jarðarbúa en samt nota þeir um 80% af öllum
auðlindunum og stýra fjánnagninu. Mörg minni lönd,
flest þeirra í suðri, hafa lent í þeim vítahring að fara að
safna erlendmn skuldum og eiga nú fullt í fangi með
að borga vexti af lánunum. Þau em því skuldum valin
og í rauiúnm að missa sjálfstæði sitt með þessu móti,
íhlutun Ákvörðunarþættir heilbrigði
Lífeðlisfræðilegir|| Atferlisffæðilegir|| Menningar- og félagslegir j Umhverfisþættir
Heilsuefling______________________ ________ H
Ahættuvamir _________________________________________________
" Heilsuvernd" ~ B
1 leilbrigóisrtiniisoknir I
Mynd 1. Þœllir sem ákvarða heilbrigði og íhlutandi aðgerðir heilsuverndar.
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.
45