Læknaneminn - 01.10.1993, Blaðsíða 39
Þetta líkan skýrir sjúkdómsgangiim við seinberkla
(post-primary tuberculosis).
FARALDSFRÆÐIBERKLA
Á öndverðri síðustu öld komst dánartala berkla
upp í um 1% á Englandi eða 1000 manns á áii á hverja
100 000 sem voru þá á lít'i (3). Hlutur berkla af öllum
dánarorsökmn var um 20-30%. Lítill vali er á að við
svo háa dánartölu varð náttúruval, sem var þeim í vil
sem besta höfðu mótstöðuna. Á íslandi eru fyrstu
skráningargögn frá 1911 og fór dánartalan af völdum
berkla upp í 217/100 000 árið 1925 en féll síðan (4).
Er talið að minna þröngbýli innanhúss, bættur
húsakostur almemit, betia viðurværi og betri sinitgát
hafi átt hlut að máli. Lyfin áttu líka hlut að máli eins
og sést á mynd 2 þar sem ferillimi lmígur lnaðar eftir
1946 (5). Nýgengi berklaveiki minnkaði líka hratt en
hefur síðustu 10 árin staðið í stað. Hundraðshluti þeirra
sem eru eða hafa verið crlendir ríkisborgarar, meðal
berklaveikra, hefur aukist (5-6).
Tíðni jákvæðra berklaprófa á íslandi síðustu áratugi
kemur fram á mynd 3. Þar sést eins og vænta má að
forðalind berklabaktería er miðaldra og eldra fólkið en
meðal hinna yngri eru jákvæð próf fátíð. Hnig hjá
áttræðum og níræðum sýnir minnkaðan hæfileika
líkamans til að bregðast við túberkúlín prótínum en
vitað er að einnútt þessir háöldruðu einstaklingar voru
meira útsettir fyrir berklabakteríur og ættu því að
Tföni á
100.000
Mynd 2. Dánartala (á 100.000) og nýgengi berkla
á íslandi 1911-1989.
vera oftar jákvæðir en aðrir (7). Á nokkrum áratugum
hliðrast toppurinn á ferlinum til hægri ef ekki verður
innllæði af fólki með jákvæð berklapróf frá löndum
þar sem berklar eru enn landlægir.
í 14 Evrópulöndum minnkaði nýgengi berkla um
5.4% árlega á árunum 1974-1991. Alveg nýlega
hefur skráðum berklatilfellum fjölgað í 8 löndum til
viðbótar, þ.e.: Austurriki, Danmörk, frlandi, Hollandi,
Noregi, Ítalíu, Bretlíuidi og Sviss. Ástæðan er aukinn
fjöldi tilfella meðal imiflytjenda frá löndmn þar sem
berklar eru enn algengir. Eyðnifaraldurinn virðist
einungis eiga hlut að tilfellaaukningunni á Spáni, á
Ítalíu og í París (8).
í Afríku er hins vegar enginn vafi á að eyðni á
verulega stóran hlut í aukningu berkla þótt hugsanlega
konú fleira úl. Þróunin í Austm-Afríku er ískyggileg
og hefur fjöldi skráðra berklatilfella á tímabilinu
1984-1990 aukist um 86% í Tanzaníu, um 180% í
Malawi, uin 140% í Burundi og 154% í Zambíu svo
eiltlivað sé nefnt. Slík þróun er óhjákvæmileg þegar
eyðnifaraldur berst úl landa þar sem verulegur hluú
af fólki á frjósemisskeiði er smitaður af
berklabakteríum. Svipuð þróim er í gangi í Rómönsku
Ameríku úl dæmis á Haiú, Honduras og víðar í Mið-
Ameríku og eyríkjum Karíbahafs. Áhyggjuefni er
hin manmnarga Asía því þar verður aukningin svo
gríðarleg ef sama þróun verður í þeim heimshluta.
í Biuidaríkjunuin minnkaði nýgengi berkla í áratugi
fram úl 1985. Frá þeim vendipunkti og úl áramóta
1991-1992 jókst nýgengi hins vegar alls um 18%.
Þetta fyrirbæri er eins og áður segir ekki einskorðað
við Bandaríkin þótt þróunin þar hafi vakið mesta
athygli hérlendis. Árið 1991 voru 56% allra
20-29 30-39 40-49 50-59 60-69 70-79 80-89 90-99
Aldurshópar
Mynd 3. Algengi jákvædra berklaprófa á íslandi
eftir 10-ára aldurshópum. Tölurnar upp til sjötugs
sýna algengiö eins og það var á árunum 1966-1985 en
árgangarnir frá 70-99 ára voru berklaprófadir 1987.
Algengið á aldrinum 6-16 ára hefur á síðasta áratug
verið um 1 afhverjum 1000prófuðum.
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.
37