Læknaneminn - 01.10.1993, Síða 46
Hlutverk heilbrigðisstétta og nýjar áherslur
Jóhann Ag. Sigurðsson
ÁGRIP
TILGANGUR ÞESSARAR greinar er að lýsa
grundvallaratriðum og umfangi heilsuvemdar og
forvamastarfs. Markmiðið er að auka víðsýni
heilbrigðisstarfsfólks og benda því á að sem fagfólk
og bústólpar heilbrigðiskerfisins sé það í forsvari
fyrir ákveðnum hluta heilsuvemdar. Þessar starfsstéttir
em einnig áhrifaaðilar í þjóðfélaginu og ber að beita
sér sem slikir við að efla heilbrigðisvitund almennings.
INNGANGUR
Viðfangsefni læknisfræðinnar em einkum að stuðla
að betra heilbrigði, koma í veg fyrir sjúkdóma eða
vanheilsu, lækna sjúka, líkna og aðlaga einstaklinginn
að umhverfinu. Samkvæmt skilgreiningu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) nægir
ekki einungis að halda sjúkdómum í skefjum, heldur
felst heilsa eða heilbrigði í fullkominni andlegri,
líkamlegri og félagslegri vellíðan. Að ofansögðu er
Ijóst að heilsuvemd er hluti læknisfræðinnar og enn
fremur að félags- og vistfræðilegt umhverfi er hluú
heilbrigðis og þar með heilsuvemdar.
Heilbrigði og heilsuvemd em þannig nátengd
“fjölvídda hugtök” (1,2). Hugtakinu “heilbrigði” hafa
verið gerð góð skil í tímaridnu Heilbrigðismál (1). Þar
er m.a. fjallað um helstu ákvörðunarþætti heilbrigðis
og íhlutandi aðgerðir forvamastarfs samkvæmt
skilgreiningum Lee og Franks, sjá mynd 1.
Heilsuefling (Health promotion) miðast að því að
styrkja einstaklinga, fjölskyldur, samfélög og þjóðir
Höfundur er prófessor í heitnilislœknisfrœðum við
Háskóla Islands.
til að greina, viðurkenna og standast hvers kyns
heilsuvá. Ahættuvarnir (Health protection) beinast
að þekktri heilsuvá i umhverfinu, svo sem eiturefnum,
loftmengun óhollustu á vinnustöðum, á heimilum
o.fl. Með heilsuvernd í þrengri skilningi (Health
care) er átt við fræðslu, skólaheilsugæslu,
ungbamavemd o.s.frv. sem einkum er unnin af
heilbrigðisstarfsfólki. Heilbrigðisrannsóknir (Ifealth
research) beinast að upplýsingaöflun og mati á árangri
þessara þátta.
Hægt er að nálgast viðfangsefnið eftir ýmsum
leiðum. Þessir þættir em ekki alveg afmarkaðir og
skarast meira eða minna. f eftirfarandi umfjöllun er
hugtakið heilsuvernd notað í víðari skilningi þessa
orðs. Vahn hefur verið sú leið að skoða alla ofannefnda
þætti frá sjónarhóli heilbrigðisstarfsmannsins. Lögð
er áhersla á aðsteðjandi hættur, helstu verkefni sem
unnið er að og gildi ramisókna á þessu sviði. Greint
verður frá heilsuvernd á alþjóðavettvangi og á
landsvísu; svæðabundinni heilsuvemd, heilsuvemd
starfshópa, fjölskyldu og einstaklinga.
I. HEILSUVERND Á ALÞJÓÐAVETTVANGI
Það er umhugsunaratriði að hlutfallslega fáir
einstaklingar hafa áhuga á alþjóðlegum vandamálum.
Líklegast er að vænta alþjóðlegrar víðsýni hjá
menntafólki. Árið 1968 hittust 30 manns frá 10 löndum
í Róm. Hér var um að ræða vísindamenn, keimara,
hagfræðinga, heimspekinga, atvinnurekendur og
embættismenn frá ríkjum og alþjóðasamtökum.
Markmið þeirra var að skoða núverandi stöðu og
framtíð mannsins - homo sapiens. Þessi hópur var
síðar nefndm Rómarsamtökin og gaf út bókina “The
Limits to Growth” árið 1972 (3). Bókin kom eiimig út
44
LÆKNANEMINN 2 1993 46. árg.